Framkvæmdasýsla ríkisins

Erindisbréf forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins skv. 38. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins er ábyrgur gagnvart fjarmálaráherra fyrir rekstri stofnunarinnar. Honum ber að framfylgja lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem um stofnunina gilda og stýra starfi hennar í samræmi við erindisbréf þetta.

Framkvæmdasýsla ríkisins starfar samkvæmt lögum um skipan opinberra framkvæmda nr. 84/2001 og reglugerð nr. 715/2001 um skipulag opinberra framkvæmda. Auk þess ber stofnuninni að starfa samkvæmt lögum nr. 65/1993, um framkvæmd útboða, lögum nr. 94/2001, um opinber innkaup og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum þ.á.m. reglugerð um opinber innkaup á EES svæðinu nr. 655/2003, um ráðstöfun eigna ríkisins nr. 206/2003, um viðmiðunarfjárhæðir nr. 101 2/2003, um notkun staðlaðra eyðublaða nr. 239/2003, og um innkaup veitustofnana nr. 705/2001. Jafnframt ber stofnuninni við störf sín að taka mið af stöðlum, viðmiðunum og leiðbeiningum ríkisins í þeim málaflokkum sem snúa að stofnuninni þ.á. m. útboðsstefnu og verklagsreglum um tilhögun frumathugunar, áætlunargerðar og verklegrar framkvæmdar við opinberar framkvæmdir.

Forstjóri Framkvæmdasýslunnar skal í embættissýslan sinni fara eftir stjórnsýslulögum nr. 37/1993, og öðrum lögum og reglum sem snerta kunna stofnunina eða einstök verkefni eftir því sem við getur átt. Samkvæmt lögum situr forstjóri í Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir og skal gera nefndinni grein fyrir framgangi þeirra verkefna sem stofnuninni hefur verið falið að vinna að.

Hlutverk Framkvæmda ríkisins er að vera leiðandi afl á sviði opinberra framkvæmda með það að markmiði að bæta verklag og auka skilvirkni, hagkvæmni og gæði við framkvæmdir ríkisins.

Helstu verkefni FSR eru:

  • Að fara með stjórn verklegra framkvæmda sem stofnunni eru falin.
  • Að veita ráðuneytum og ríkisstofnunum ráðgjöf um byggingartæknileg málefni og undirbúning framkvæmda og stuðla að faglegum vinnubrögðum.
  • Að vinna að frumathugun og áætlunargerð opinberar framkvæmdir sé eftir því leitað.
  • Að samræna form og undirbúa samninga við ráðgjafa og aðra þá sem að áætlunargerð vinna.
  • Að undirbúa og annast framkvæmd útboða og samninga við verktaka.
  • Að sjá um reikningshald og greiðslur vegna verka nema öðruvísi um semjist eða fjármálaráðuneytið ákveði annað.
  • Að hafa frumkvæði að útgáfu viðmiðanna um stærð og gæði opinberra mannvirkja ásamt því að veita fjármálaráðuneyti ráðgjöf um fasteignamál ríkisins.
  • Að veita fjármálaráðuneyti og Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir umsagnir um frumathuganir og áætlanagerð.
  • Að sjá um gerð skilamata vegna framkvæmda á vegum stofnunarinnar sem fram komi hvernig framkvæmdir hafi tekist miðað við áætlanir ásamt samanburði við hliðstæðar framkvæmdir sé þess kostur.
  • Að uppfylla aðrar skyldur sem stofnuninni eru lagðar á herðar samkvæmt lögum um skipan opinberra framkvæmda nr. 84/2001 og reglugerðar nr. 715/2001 um skipulag opinberra framkvæmda.

Forstjóri vinnur að gerð langtímaáætlunar á grundvelli árangursstjórnunarsamnings við fjármálaráðuneytið þar sem meginmarkmið stofnunarinnar eru nánar útfærð og skilgreind. Fyrir 30. nóvember 2004 skal Framkvæmdasýslan setja fram drög að langtímaáætlun til næstu fimm ára, um helstu verkefni, forgangsröðun og áherslur á tímabilinu 2005-2009. Áætlunina má endurskoða eftir þörfum. Forstjóra ber að öðru leyti að starfa samkvæmt stefnu fjármálaráðherra hverju sinni og fyrirmælum fjármálaráðuneytis.

Í desembermánuði ár hvert skal forstjóri skila ráðuneytinu ársáætlun fyrir næsta ár sem innihaldi bæði rekstraráætlun og tiltekin markmið og mælikvarða innan ársins á grundvelli langtímaáætlunar. Í mars ár hvert skilar stofnunin árangursskýrslu til ráðuneytisins sem gerir grein fyrir árangri í starfsemi stofnunarinnar undanfarið ár með samanburði við þau markmið sem birt eru í ársáætluninni ásamt uppgjöri.

Fjármálaráðuneytið tekur afstöðu til þeirrar markmiðasetningar, forgangsröðunar og mælikvarða sem fram koma í áætlunum stofnunarinnar og kemur sjónarmiðum ráðuneytisins og leiðbeiningum á framfæri vegna þess. Jafnframt heldur það fundi með forstjóra ár hvert í kjölfar .
þess að stofnunin skilar árangursskýrslu þar sem árangur ársins á undan er ræddur og langtímaáætlun stofnunarinnar skoðuð í því ljósi.

Forstjóri ber ábyrgð á því að rekstur stofnunarinnar sé í samræmi við fjárlög og langtímaáætlun hennar og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Erindisbréf þetta gildir þar til annað verður ákveðið af fjármálaráðherra. Forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins getur óskað eftir endurskoðun þessa erindisbréfs.


Fjármálaráðuneytinu, 10. september 2004
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra






Flýtival




Tungumál


Þetta vefsvæði byggir á Eplica