Umhverfisstefna Stjórnarráðsins
Markmið
Markmið umhverfisstefnu Stjórnarráðsins er að bæta nýtingu hvers kyns aðfanga sem notuð eru í starfsemi ráðuneyta. Leitast skal við að ná þessu markmiði með því að velja viðurkenndar umhverfisvænar vörur, endurvinna úrgang sem til fellur og tryggja að spilliefnum sé fargað á viðeigandi hátt.
Ráðuneytisstjórar eru ábyrgir fyrir framkvæmd stefnunnar. Hver og einn starfsmaður ráðuneytanna skal leitast við að framfylgja henni svo sem kostur er.
Innkaup

Við innkaup skal taka tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða. Ef um sambærilegar vörur er að ræða er sú tegund valin sem telst síður skaðleg umhverfinu. Hafa ber í huga að dýrari vara kann að leiða til sparnaðar til langs tíma.
Leitast skal við að kaupa vörur merktar með viðurkenndu umhverfismerki, s.s. merki Evrópusambandsins, norræna umhverfismerkinu (svaninum), bláa englinum (þýska umhverfismerkið) eða öðrum viðurkenndum merkjum.
Leitast skal við að kaupa inn í stórum einingum til að bæta nýtingu verðmæta. Mælst er til að keypt séu gluggaumslög með glugga úr endurnýtanlegu efni. Forðast ber að kaupa umslög með lími úr leysiefnum.
Almennt ber að forðast að kaupa vörur sem innihalda lífræn leysiefni þar sem þau eru skaðleg bæði umhverfinu og heilsu manna. Slík efni finnast m.a. í mörgum gerðum líms, leiðréttingalakks, tússlita o.fl. Yfirleitt er hægt að fá tegundir sem nota vatnsleysanleg efni í stað hinna. Skaðlegar vörur má oft greina af varúðarmerkingum.
Leitast skal við að kaupa ekki vörur sem innihalda PVC-plast (s.s. möppur), en nota þess í stað sambærilegar vörur úr pappa eða öðrum gerðum plasts. Þetta á einnig við um frágang á prentuðu efni ráðuneyta t.d. plasthúðuðum kápum.
Fjölnota vörur eru fremur keyptar en einnota. Notkun á einnota drykkjarmálum eða öðrum slíkum borðbúnaði er reynt að halda í lágmarki.
Ljósritunarvélar sem keyptar eru þurfa að vera merktar umhverfismerki. Slíkar vélar fullnægja ströngum kröfum um orkunotkun, hávaða, losun ryks og möguleika á endurvinnslu ákveðinna hluta vélanna.
Pappírsnotkun

Pappír sem keyptur er í prentara og ljósritunarvélar skal hafa viðurkennt umhverfismerki eða vera endurunninn og óklórbleiktur og samræmast reglum Þjóðskjalasafns Íslands.
Við aðkeypta prentun skal stefna að því að notaður sé umhverfisvænn pappír.
Dregið er eftir föngum úr pappírsnotkun jafnt í útgáfustarfsemi sem annarri starfsemi, m.a. með því að nýta kosti rafrænnar tækni.
Endurvinnsla

Endurvinnanlegan pappír skal senda í gagnaeyðingu.
Prenthylki eru send í endurvinnslu.
Ónýtum rafhlöðum ber að koma í spilliefnamóttöku.
Dósum og endurvinnanlegum drykkjarumbúðum er safnað saman til endurvinnslu.
Reykingar

Samkvæmt lögum um tóbaksvarnir nr. 6/2002.
Orkunotkun og viðhald
Að loknum starfsdegi á starfsfólk að ganga frá sínu vinnusvæði, slökkva á tölvum og öðrum rafmagnstækjum og slökkva ljós.
Leitast er við að draga úr hljóðmengun, nýta dagsbirtu til lýsingar eins og kostur er og lágmarka orkunotkun, m.a. með reglubundinni stillingu tækja og fyrirbyggjandi viðhaldi.