Starfsmannaskrifstofa

Starfsmannaskrifstofa er málsvari ríkisins í málefnum vinnumarkaðarins og kemur sjónarmiðum þess á framfæri á þeim vettvangi.

Skrifstofan mótar stefnu ríkisins í starfsmanna- og mannauðsmálum í samræmi við áherslur stjórnvalda og ber ábyrgð á því laga- og regluverki sem varðar launa-, kjara- og lífeyrismál starfsmanna ríkisins, réttindi þeirra og skyldur. Einnig veitir skrifstofan stjórnvöldum og einstökum stofnunum ráðgjöf við framkvæmd og túlkun laga, reglna, samninga um vinnumarkaðs- og starfsmannamál.

Almennar og sértækar úttektir og athuganir á sviði kjara- og stefnumarkandi mála eru í umsjá skrifstofunnar og þá falla verkefni Samninganefndar ríkisins undir verksvið skrifstofunnar.


Tengill: Skipurit ráðuneytisins



Þetta vefsvæði byggir á Eplica