Rekstrar- og upplýsingasvið
Rekstrar- og upplýsingasvið annast rekstur ráðuneytisins, sameiginlega þjónustu, upplýsingamál, fjárlagagerð og rekstrarlegt eftirlit með stofnunum ráðuneytisins.
Í rekstri ráðuneytisins felst m.a. áætlanagerð, fjármál, innkaup og starfsmannamál. Með sameiginlegri þjónustu er m.a. átt við afgreiðslu, símsvörun, póst- og sendlaþjónustu, bókhaldi, greiðslu reikninga og umsjón með tækjakosti. Skrifstofan hefur umsjón með skjala- og upplýsingamálum, upplýsingamiðlun, útgáfu og mótar stefnu og markmið um rafræna stjórnsýslu í samráði við önnur ráðuneyti.
Auk þess vinnur rekstrar- og upplýsingasvið ásamt öðrum skrifstofum að undirbúningi og framkvæmd einstakra verkefna ráðuneytisins á sviði umbóta- og fræðslumála.

