Skipulag

Fjármálaráðuneytið starfar skv. lögum nr. 73 frá 28. maí 1969, um Stjórnarráð Íslands, með síðari breytingum, og reglugerð samkvæmt þeim, nr. 177 frá 31. desember 2007. Samkvæmt 7. gr. laganna kveður ráðherra á um skiptingu ráðuneytisins í skrifstofur og starfsdeildir eftir verkefnum.

Skipulag ráðuneytisins er í meginatriðum þannig:

  1. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Ráðherra felur einum skrifstofustjóra ráðuneytisins að vera staðgengill ráðuneytisstjóra.
  2. Með ráðherra starfar aðstoðarmaður.
  3. Skrifstofu eða sviði ráðuneytis stýrir skrifstofustjóri.
  4. Sérfræðingar starfa innan einstakra skrifstofa eða sviða. Sama gildir um annað starfsfólk. Skrifstofustjórum eru sett erindisbréf en sérfræðingar starfa skv. starfslýsingu.

Ráðuneytið starfar sem ein heild og skiptist í fjórar skrifstofur og tvö svið. Skrifstofurnar eru: (a) fjárlagaskrifstofa, (b) fjárreiðu- og eignaskrifstofa, (c) starfsmannaskrifstofa og (d) tekju- og skattaskrifstofa. Sviðin eru lögfræðisvið og rekstrar- og upplýsingasvið. Ráðuneytisstjóri stýrir starfi ráðuneytisins samkvæmt erindisbréfi í umboði ráðherra og annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og sviða og felur einum starfsmanna hverrar skrifstofu og sviðs staðgöngu fyrir skrifstofustjóra í fjarveru hans.


Tengill: Skipurit ráðuneytisins




Flýtival




Tungumál


Þetta vefsvæði byggir á Eplica