Um ráðherra
Oddný G. Harðardóttir er fjármálaráðherra frá 31. desember 2011
Oddný er fædd í Reykjavík 9. apríl 1957. Foreldrar hennar eru Hörður Sumarliðason járnsmiður og Agnes Ásta Guðmundsdóttir verslunarmaður.
Oddný er gift Eiríki Hermannssyni, fræðslustjóra Reykjanesbæjar. Þau eiga dæturnar Ástu Björku og Ingu Lilju.
Oddný er með stúdentspróf frá KHÍ 1977 og B.Ed.-próf frá sama skóla 1980, stærðfræðinám til kennsluréttinda á framhaldsskólastigi HÍ 1991 og MA-próf í uppeldis- og menntunarfræði HÍ 2001.
Oddný starfaði sem grunnskólakennari 1980-1985. Hún var kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1985-1993, deildarstjóri stærðfræðideildar 1988-1990 og sviðsstjóri stærðfræði- og raungreinasviðs 1990-1993. Hún kenndi við Menntaskólann á Akureyri 1993-1994 og var aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1994-2003. Oddný vann við skipulag og stjórnun vettvangsnáms á vegum Endurmenntunar HÍ fyrir starfandi stjórnendur í framhaldsskólum 2001-2002, var verkefnisstjóri í menntamálaráðuneytinu 2003-2004. Þá var hún skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja 2005 og bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs 2006-2009.
Oddný var í stjórn Sambands iðnmenntaskóla 1994-1999, í stjórn samstarfsnefndar atvinnulífs og skóla 1995-1998 og í stuðningshópi á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum 1997-1999. Hún var formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum 2002-2003 og í stjórn Kennarasambands Íslands 2002-2003. Oddný var oddviti lista Nýrra tíma í Sveitarfélaginu Garði 2006. Hún var formaður skólanefndar Garðs frá 2006, í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2006-2009 og formaður hennar 2007-2008, í stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja 2006-2009, þar af formaður 2007-2008, í stjórn Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum frá 2006 og í stjórn Brunavarna Suðurnesja 2008-2009. Oddný var í stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna 2007-2009, í skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar 2007-2009 og í skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá 2008.
Oddný er Alþingismaður Suðurkjördæmis síðan 2009. Þar hefur hún setið í fjárlaganefnd 2009-2011 (form. 2010-2011), menntamálanefnd 2009-2011 (form. 2009-2010), samgöngunefnd 2009-2010, þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010, allsherjar- og menntamálanefnd frá 2011, þingskapanefnd frá 2011 og Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins frá 2011.
