Beint í leiðarkerfi vefsins.
Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, efnahags - og viðskiptaráðherra, birtu sameiginlega blaðagrein í Fréttablaðinu í dag. Grein þeirra fjallar um útgreiðslu 2,6 mia. kr í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur nú 1.maí sem er hrein viðbót við hefðbundnar vaxtabætur sem ríkissjóður greiðir. Þau benda á að með hækkun vaxtabóta um á þriðja milljarð króna á fyrrihluta árs 2009 sem hefur haldist síðan, hafi ríkið varið um 18 milljörðum króna í vaxtabætur og í sérstaka vaxtaniðurgreiðslu á hverju ári árin 2011 og 2012. Það sé nálægt þriðjungur af öllum vaxtakostnaði heimilanna. Greinina má lesa hér í heild sinni.
Oddný G. Harðardóttir, birti nýlega grein í Fréttablaðinu. Í greininni fjallar fjármálaráðherra um hugmyndir um gjald á auðlindarentu, svarar gagnrýnisröddum þar um og segir m.a. frá vinnu við stofnun auðlindareiknings í eigu ríkissjóðs. Greinina má lesa í heild sinni hér.
Grein fjármálaráðherra með yfirskriftinni " Við eigum brekku eftir" birtist í Fréttablaðinu þann 10.apríl. Í greininni ritar ráðherra um stöðuna í ríkisfjármálum og um nauðsyn þess að halda áfram vel um stjórntaumana svo áætlanir um afgang í ríkissjóði árið 2014 gangi eftir.
Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra, birti í dag grein í Morgunblaðinu um vaxtabætur. Í greininni rekur ráðherra hvernig breytingar sem gerðar voru á úthlutun vaxtabóta beindu fjármunum til þeirra fasteignaeigenda sem verst voru staddir. Lesa má greinina hér ásamt ítarefni.
Fjármálaráðherra flutti nýverið munnlega skýrslu á Alþingi um stöðu lífeyrissjóðanna með vísan til skýrslu um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Hér má lesa skýrslu fjármálaráðherra.
Lesa meiraFélag kvenna í atvinnurekstri afhenti árlegar viðurkenningar sínar þann 26. janúar sl. Fjármálaráðherra hélt við það tilefni ræðu þar sem hún hvatt konur áfram til að koma enn frekar að ákvarðanatöku í fyrirtækjarekstri og nauðsyn þess að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja eins og stefna stjórnvalda segir til um, ásamt því að hvetja fleiri til atvinnurekstrar.
BSRB, BHM og KÍ héldu ráðstefnu um lífeyrissjóðsmál þann 19. janúar sl. Fjármálaráðherra hélt þar erindi um óvissuþætti og framtíðarhorfur lífeyriskerfisins sem lesa má hér.
Lesa meiraÍ ræðu sinni á skattaráðstefnu Deloitte, SA,Viðskiptaráðs og viðskiptablaðs Morgunblaðsins fór Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, meðal annars yfir það að tekjuskattshlutfall fyrirtækja hér á landi það næst lægsta af því sem ríkir í löndunum í kring um okkur, hver rauði þráður núverandi ríkisstjórnar í þeim erfiðu niðurskurðar og tekjuöflunaraðgerðum eftir efnahagshrun var ávallt sá að hlífa þeim sem minna mega sín og auka jöfnuð í íslensku samfélagi sem kostur er.
Lesa meiraFjármálaráðherra hélt opnunarerindi á aðalfundi Félags atvinnurekanda sem haldin var í gær. Í erindi sínu fór ráðherra yfir þau markmið sem ríkisstjórnin setti sér í atvinnumálum fyrir 3 árum, hvað hefur áunnist á þeim tíma og hverju aðgerðir á borð við ívilnunaraðgerðir í skattamálum hafa skilað til atvinnulífsins.
Lesa meiraFjármálaráðherra, Oddný G. Harðardóttir, flutti ávarp við opnun Verne gagnavers að Ásbrú í Reykjanesbæ. Fór ráðherra m.a. yfir hvernig tilkoma alþjóðlegs gagnavers á Íslandi er í fullu samræmi við nýja, heildstæða orkustefnu sem nýlega var kynnt á Alþingi og hvernig lög um ívilnanir vegna nýfjárfestingar greiddu leið Verne Global en 10 önnur nýfjárfestingarverkefni á grundvelli nýju laganna eru til meðferðar í stjórnkerfinu.
Lesa meiraOddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, birti grein í Fréttablaðinu þann 18. janúar.
Lesa meira