Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, ritaði grein sem birtist í vikunni í Fréttablaðinu. Í greininni rekur fjármálaráðherra þann ótvíræða árangur sem náðst hefur í rekstri ríkissjóðs við afar erfið skilyrði, hvernig hefur náðst að minnka halla ríkissjóðs tífalt, hvernig sú vinna hefur skapað skilyrði til að mæta útgjöldum vegna tímabærra kjarabóta, hækkanir á bótum og lífeyri og um þá staðreynd að hvergi var hvikað frá varðstöðunni um velferðarkerfið við gerð fjármálafrumvarpsins 2012.
Fjármálaráðherra flutti ávarp á Innkaupadegi Ríkiskaupa þann 29. nóvember síðastliðinn. Í ávarpi sínu fjallaði ráðherra m.a. um markmið stjórnvalda er að halda áfram að þróa aðferðir til að auka gagnsæi og hagkvæmni við opinber innkaup og þá vinnu sem fjármálaráðuneytið er að leggja af stað með í því að endurskoða innkaupastefnu ríkisins en við þá vinnu verður hugað að ýmsum nýjum þáttum á borð við hvernig unnt er að nýta opinber innkaup til nýsköpunar í atvinnulífinu og samfélagslega ábyrgð með vistvænum innkaupum. Hér má lesa ávarpið í heild sinni.
Lesa meiraÁhrif laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki í formi skattaafsláttar eru nú að koma í ljós. Heildarfjárhæð skattaafsláttarins vegna umsvifa fyrirtækja sem starfa á sviði nýsköpunar, rannsókna og þróunar á árinu 2010 nam hátt í hálfum milljarði króna. Af því tilefni lagði fjármálaráðherra nýverið fram minnisblaði í ríkisstjórn um niðurstöðuna og skrifaði grein þann 9. nóvember í Fréttablaðið um áhrif laganna. Grein ráðherra birtist hér.
Lesa meiraGrein Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, með yfirskriftinni „Ísland á tímamótum! - leggja allir sitt af mörkum?“ birtist í Fréttablaðinu 10. október.
Lesa meiraÍslendingum er öllum kunnugt það gerningaveður sem reið yfir landið í október 2008.
Lesa meiraFormand, ærede mødedeltagere!
Lesa meiraFjármálaráðherra flutti í gær erindi við Trinity háskólann í Dublin á Írlandi í fyrirlestraröð sem er tileinkuð Henry Grattan.
Lesa meiraFjármálaráðherra birti grein í Fréttablaðinu þann 18. maí. Í greininni fer ráðherrann yfir stöðu ríkissjóðs og rekur áhrifin af óbreyttu lánshæfismati matsfyrirtækjanna Standard & Poors og Moody´s og ákvörðun Fitch um að færa lánshæfishorfur Íslands af neikvæðum í stöðugar. Mat fyrirtækjanna segir ráðherrann vera varnarsigur sem sé afar mikilvægur í samhengi kjarasamninga og væntanlegra fjárfestinga. Greinina má lesa hér í heild sinni.
Sameiginleg blaðagrein forsætisráðherra og fjármálaráðherra vegna yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga um skuldbindingar yfirvalda um verulegar aðgerðir til stóreflingar velferðarkerfisins og örvunar í hagkerfinu. Greinin birtist í Fréttablaðinu.
Lesa meiraSteingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, birti grein um Evrópumál í vikunni á vefmiðlinum Smugan. Í greininni fjallar ráðherrann að mestu leyti um umræðuna hér á landi um málefni Evrunnar, Evrusvæðisins og Evrópusambandsins.
Lesa meiraVið áramótin 2010 – 2011 er Ísland á tímamótum í margvíslegum skilningi.
Lesa meiraErindi Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands um skattamál, 23. september 2010.
Lesa meiraFjármálaráðherra skrifaði greinaflokk í lok ágústmánaðar sem birtist samtímis í Fréttablaðinu, Vísi, Viðskiptablaðinu og á Smugunni.
Lesa meiraÍ greinarflokki þessum undir heitinu „Landið tekur að rísa” hefur verið fjallað um aðdraganda og orsakir hrunsins sem hér varð, aðgerðir ríkisstjórnarinnar því tengdu, árangur aðgerðanna, hin ærnu verkefni framundan og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Ég tel mig hafa fært fyrir því traust og tölfræðilega studd rök að það gríðarmikla verkefni sem núverandi ríkisstjórn fékk í fangið er á góðri leið með að takast. Við erum á réttri leið þó heilmiklar brekkur séu eftir. Og þá að framtíðinni og þeirri staðreynd að tækifærin sem landið hefur til að endurreisa sig og skila okkur á ný lífskjörum eins og best þekkjast í heiminum eru óteljandi.
Lesa meiraÍslendingar eru sjálfstæð og fullvalda þjóð með eigin örlög í sínum höndum. Þannig viljum við hafa það og það er stefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. En maðurinn er aldrei einn og eins er það með þjóðirnar. Stjórnmála- og viðskiptasambönd, þátttaka í margskonar tvíhliða og marghliða samstarfi, aðild að alþjóðastofnunum og sáttmálum eru óaðskiljanlegur hluti þess að vera til og þróast sem sjálfstætt ríki meðal ríkja, sem þjóð meðal þjóða. Við úrlausn mála eftir efnahagshrun er sjálfstæðið áfram mikilvægur útgangspunktur allrar okkar vinnu. Við ætlum sem sjálfstæð þjóð, ekki síst efnahagslega sjálfstæð, að endurreisa hér það sem hrundi og sanna okkur á ný sem ráðvant og ábyrg fólkt.
Lesa meiraÍ fyrri greinum hefur verið farið yfir orsakir og afleiðingar bankahrunsins, þann árangur sem þegar hefur náðst í glímunni við kreppuna og staða þjóðarbúsins verið greind. Um leið og því ber að fagna sem áunnist hefur er engin ástæða til að draga dul á að mikil og erfið verkefni bíða úrlausnar. Nú verður farið yfir nokkur þau helstu hér innanlands. Þau sem bíða okkar í samskiptum við erlenda aðila verða reifuð síðar.
Lesa meiraAlmenningur þekkir vel af eigin raun hversu mikið högg íslenska hagkerfið hlaut við fall bankanna síðla árs 2008. Stærð þeirra og umsvif olli því að vandi Íslands varð mun meiri en önnur ríki hafa staðið frammi fyrir af sambærilegum ástæðum. Um orsakir þessa hef ég þegar fjallað í fyrri greinum, en sný mér nú að jákvæðum teiknum sem eru á lofti í íslensku efnahagslífi.
Lesa meiraRíkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingingarinnar tók við erfiðu verkefni fyrir einu og hálfu ári í kjölfar hrunsins. Ekki einungis beið hennar að reisa nýtt hagkerfi úr rústum þess gamla, heldur tók hún við í andrúmslofti mettuðu reiði og tortryggni, ekki síst í garð stjórnmálanna.
Lesa meiraÁ annasömum tímum hættir eflaust fleirum en höfundi til að dragast niður í úrlausnarefnin, lokast inni við hið hversdagslega amstur daganna. Vill þá farast fyrir að lögð séu niður amboðin og gengið á sjónarhól mannlífs og atburða, skyggnst um og horft jafnt um öxl sem fram á veginn. Hér verður á eftir og í nokkrum tengdum blaðagreinum gerð tilraun til að bæta þar úr hvað undirritaðan varðar.
Lesa meiraKæru fundargestir Íslendingar hafa löngum státað sig af því að vera meðal fremstu þjóða þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Samt er það nú svo, hér eins og annars staðar, að jafnrétti er langt því frá náð.