Samningar um lausn Icesave
Samningar um lausn Icesave
Hinn 9. apríl nk. fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um frambúðargildi laga nr. 13/2011 um heimild til að staðfesta nýju Icesave-samningana. Í staðfestingu þessara samninga er fólgin skuldbinding um að ábyrgjast greiðslur samkvæmt þeim, en slíka ábyrgð má ríkið ekki veita án heimildar í lögum.
Þar eð lögin svara því ekki sjálf hvers efnis samningarnir eru þykir af hálfu fjármálaráðuneytisins rétt að gera hér fyrir því eins glögga grein og kostur er.
Boðið er upp á nokkrar misítarlegar leiðir til að kynna sér efni samninganna:
