Aukatekjur ríkissjóðs
Um aukatekjur ríkissjóðs gilda lög nr. 88/1991 (á alþingi.is), með síðari breytingum. Gjöld sem innheimt eru samkvæmt lögunum renna í ríkissjóð.
Lögin skiptast í eftirfarandi kafla:
Dómsmálagjöld
Gjöld fyrir fullnustugerðir og búskipti fyrir sýslumanni
Gjöld fyrir þinglýsingar og lögbókandagerðir
Gjöld fyrir veitingu atvinnuréttinda og tengdra réttinda
Leyfi fyrir atvinnustarfsemi og tengd leyfi
Ýmis leyfi varðandi heimild til að selja, kaupa og fara með hættuleg efni og tæki
Gjöld fyrir ýmsar skráningar
Ýmis vottorð og leyfi
Afgreiðslugjald skipa
Ljósrit, endurrit og eftirgerð
Gjöld fyrir staðfestingu skipulagsskráa og birtingu reglugerða lífeyrissjóða
Um innheimtu gjaldanna, gildistöku o.fl.
Innheimtu gjalda samkvæmt lögum þessum annast sýslumenn, héraðsdómarar og hliðstæðir embættismenn, svo og fjármálaráðuneyti eða önnur ráðuneyti í umboði þess.
