Tollar og vörugjöld
Yfirlit
Fjármálaráðuneytið fer með yfirstjórn tollamála og hefur eftirlit með því að tollframkvæmdin sé í samræmi við lög, reglur og önnur fyrirmæli varðandi tollamálefni og alþjóðasamninga um tollmál sem Ísland er aðili að. Reglugerðir um tollamál eru settar af fjármálaráðherra. Þá kemur ráðuneytið að gerð fríverslunarsamninga við önnur ríki. Lista yfir fríverslunarsamninga sem Ísland er aðili að má nálgast á heimasíðu utanríkisráðuneytisins (www.utanrikisraduneyti.is). Fríverslunarsamninga EFTA við önnur lönd má finna á ensku á heimasíðu EFTA (secretariat.efta.int). Fríverslunarsamningar eru birtir í C-deild Stjórnartíðinda.
Tollstjórar
Tollstjórar eru tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn í öðrum umdæmum. Hlutverk tollstjóra er að annast álagningu og innheimtu tolla, skatta og annarra gjalda sem greiða ber við tollafgreiðslu samkvæmt lögum. Skattstjórar annast þó einnig álagningu vörugjalds að hluta til. Þá annast tollstjórar eftirlit með inn- og útflutningi á vörum og flutningi á ótollafgreiddum vörum innan lands og jafnframt fylgjast þeir með ferðum og flutningi fólks og farartækja til og frá landinu. Í umboði fjámálaráðherra annast tollstjórinn í Reykjavík samræmingu tollframkvæmdar á landinu.
Úrskurðir og kærur
Kæra má úrskurði tollstjóra um gjaldskyldu, tollflokkun, tollverð eða fjárhæð aðflutningsgjalda við tollmeðferð vöru til ríkistollanefndar. Úrskurði skattstjóra má hins vegar kæra til yfirskattanefndar. Úrskurðir nefndanna eru fullnaðarúrskurðir á stjórnsýslustigi. Úrskurðir ríkistollanefndar eru birtir á heimasíðu tollstjórans í Reykjavík ásamt öðrum upplýsingum um nefndina. Úrval úrskurða yfirskattanefndar eru birtir á heimasíðu nefndarinnar ásamt öðrum upplýsingum um nefndina (www.yskn.is). Úrskurði tollstjóra og skattstjóra vegna lækkunar eða niðurfellingar gjalda skvæmt tilteknum ákvæðum tollalaga sæta kæru til ráðuneytisins svo og í öðrum tilvikum ef málið sætir ekki kæru til ríkistollanefndar. Úrskurðir ráðuneytisins eru fullnaðarúrskurðir á stjórnsýslustigi.
Um tollamál
Um tollamál gilda tollalög nr. 55/1987 ásamt fjölda sérlaga og stjórnvaldsfyrirmæla sem finna má á einum stað á heimasíðu tollstjórans í Reykjavík (www.tollur.is).
Um vörugjöld
Um vörugjöld gilda lög um vörugjald nr. 97/1987 og lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. nr. 29/1993 og stjórnvaldsfyrirmæli sem sett eru á grundvelli þeirra. Umræddar reglur má einnig finna á ofangreindri heimasíðu tollstjórans í Reykjavík.
Erlendar stofnanir sem fjalla um tollamál
Á vef tollstjórans í Reykjavík
