Flokkun þjónustu

Þjónustu er skipt í tvo flokka A og B. Þjónustu í flokki A skal bjóða út samkvæmt öllum ströngustu ákvæðum sem koma fram í tilskipun ráðsins um samræmingu reglna um útboð og gerð opinberra samninga um kaup á þjónustu. Ekki er skylt að bjóða út þjónustu í flokki B en ef það er gert þá þarf að fylgja kröfum um notkun evrópskra staðla við gerð tækniforskrifta. Gerð allra samninga um þjónustu í flokki B þarf að tilkynna í Stjórnartíðindum EB með auglýsingu en kaupandi ræður hvort hún verður birt eða ekki.

Þjónusta í flokki A

Viðfangsefni CPC-flokkunarnúmer
1 Viðhalds- og viðgerðaþjónusta 6612, 6122, 633, 886
2 Flutningaþjónusta á landi (1), þ.m.t. með brynvörðum bifreiðum, og hraðsendingarþjónusta, að undanskildum póstflutningum 712 (þó ekki 71235)
7512, 87304
3 Farþega- og vöruflutningaþjónusta í lofti, að undanskildum póstflutningum 73 (þó ekki 7321)
4 Póstflutningar á landi(1) og í lofti 71235, 7321
5 Fjarskiptaþjónusta(2) 752
6 Fjármagnsþjónusta
tryggingar
banka- og fjárfestingaþjónusta(3)
úr 81
812, 814
7 Tölvuþjónusta og skyld þjónusta 84
8 Þjónusta við rannsóknir og þróun(4) 85
9 Reikningshald, endurskoðun og bókfærsluþjónusta 862
10 Markaðsrannsóknir og þjónusta við skoðanakannanir 864
11 Ráðgjöf við stjórnun(5) og skyld þjónusta 865, 866
12 Arkitektaþjónusta; verkfræðiþjónusta og samræmd verkfræðiþjónusta; skipulagsþjónusta og þjónusta skrúðgarðyrkjumeistara; vísindaleg og tæknileg ráðgjöf sem tengist þessum greinum; tækniprófunar- og greiningarþjónusta 867
13 Auglýsingaþjónusta 871
14 Hreingerningar- og húsvarðarþjónusta 874, 82201 til 82206
15 Útgáfu- og prentunarþjónusta gegn gjaldi eða samkvæmt samningi 88442
16 Þjónusta við fráveitur og sorpeyðingu; hreinlætisþjónusta. 94

(1) Að undanskildum járnbrautarflutningum sem heyra undir flokk 18.
(2) Að undanskildum talsíma- og fjarritaþjónustu, þráðlausum talsíma, boðkerfis- og gervihnattaþjónustu.
(3) Að undanskildum samningum um fjármagnsþjónustu í sambandi við útgáfu, sölu, kaup eða yfirfærslu verðbréfa og annarra fjármálaskjala, og seðlabankaþjónustu.
(4) Að undanskildum samningum um rannsóknir, nema þar sem opinberir aðilar bera allan kostnað við þjónustuna sem um ræðir og hafa einkarétt til að njóta góðs af árangrinum í starfsemi sinni.
(5) Að undanskilinni þjónustu vegna gerðardóms og sáttameðferðar.

Þjónusta í flokki B
Nr Viðfangsefni CPC-flokkunarnúmer
17 Hótel- og veitingaþjónusta 64
18 Járnbrautarflutningar 711
19 Flutningar á sjó eða vatnaleiðum 72
20 Auka- eða viðbótarflutningaþjónusta 74
21 Lögfræðiþjónusta 861
22 Ráðningarþjónusta 872
23 Öryggis -og eftirlitsþjónusta, að undanskildum flutningum með brynvörðum bifreiðum 873 (þó ekki 87304)
24 Kennsla og starfsmenntunarþjónusta 92
25 Heilbrigðis- og félagsmálaþjónusta 93
26 Tómstunda-, menningar- og íþróttaþjónusta 96
27 Önnur þjónusta


Fyrir hvert viðfangsefni eru gefin upp CPC – flokkunarnúmer sem útskýra nákvæmlega um hvaða þjónustu er að ræða í hverju tilviki.






Flýtival




Tungumál


Þetta vefsvæði byggir á Eplica