Fréttir stjórnenda

Fréttir stjórnenda

Þessi fréttaflokkur geymir fréttabréf fyrir stjórnendur ríkisstofnana sem starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins gefur út.

Fréttabréfið er ætlað forstöðumönnum ríkisstofnana, öðrum stjórnendum og starfsmönnum sem vinna við rekstrar- og starfsmannamál. Í fréttabréfinu er að finna fróðleik og upplýsingar um málefni sem snerta rekstur, stjórnun og starfsmannamál. Þá er í hverju fréttabréfi pistill frá Félagi forstöðumanna. Fréttabréfið er gefið út fjórum sinnum á ári. Útgáfa þess hófst sumarið 1999 og er það eingöngu birt á vef ráðuneytisins.

Sendu okkur beiðni um áskrift að fréttabréfi stjórnenda.


Fréttir stjórnenda

Fréttabréf stjórnenda ríkisstofnana 22. desember 2009 - 22.12.2009 Fréttir stjórnenda

Að þessu sinni er sagt frá því að á nýju ári stendur til að virkja mannauðsvef á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Sagt er frá ráðgjafavakt starfsmannaskrifstofunnar, ráðstefnu um kynjaða fjármlagagerð, sérstöku vefsvæði sem opnað hefur verið fyrir forstöðumenn svo og norrænu starfsmannaskiptunum og lausum störfum hjá Norrænu ráðherranefndinni. Þá er sagt frá þeim stjórnarfrumvörpum sem varða starfsmannamál ríkisstofnana sem samþykkt hafa verið nýlega sem lög frá Alþingi. Frétt frá félagi forstöðumanna að þessu sinni ber heitið Skýr ábyrgð = betri árangur.

Lesa meira
 

Fréttabréf stjórnenda ríkisstofnana 13. október 2009 - 13.10.2009 Fréttir stjórnenda

Í þessu fréttabréfi er fjallað um mannauðsstjórnun á tímum aðhaldsaðgerða, fluttar eru fréttir af mannauðskerfum ríkisins og sagt er frá samræmingu og eflingu á skráningu upplýsinga í launakerfi ríkisins. Þá er fjallað um nýlegt álit umboðsmanns Alþingis um ráðningu lögfræðings hjá ríkinu og kynnt nýtt efni á vefsvæði starfsmannaskrifstofu. Greinin frá Félagi forstöðumanna ríkisstofnana fjallar um fræðslu, forystu og traust.

Lesa meira
 

Fréttabréf stjórnenda ríkisstofnana 29. apríl 2009 - 29.4.2009 Fréttir stjórnenda

Innleiðing mannauðskerfa ríkisins er ofarlega á baugi að þessu sinni. Sagt er frá ráðningarkerfi fyrir ríkisstofnanir, ferðauppgjörskerfinu og nýrri útgáfu sjálfsafgreiðslu starfsmanna. Birt er yfirlit yfir fjölda og kynjaskiptingu forstöðumanna ríkisstofnana í janúar 2009 borið saman við janúar 2008. Fjallað er um meðalaldur forstöðumanna svo og kynjaskiptingu þeirra eftir aldurshópum. Sagt er frá rannsókn um um úttekt á áhrifum launakerfisins á launamun karla og kvenna innan BHM. Þá er sagt frá könnun meðal forstöðumanna um stjórn starfsmannamála, jafnrétti og launamun. Báðar þessar skýrslur eru birtar á vef ráðuneytisins. Greint er frá nýjum möguleika stjórnenda í opinberum rekstri til að stunda nám á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu. Komið er yfirlit yfir þá dóma sem féllu á árinu 2008 inn á vefsíðuna ásamt fleira efni sem greint er frá. Grein Félags forstöðumanna fjallar um ár óvissunnar svo og aðalfund félagsins sem heldinn verður 11. maí nk.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica