Hoppa yfir valmynd
15. júlí 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkissjóður greiðir upp Avens skuldabréf

Í dag hefur ríkissjóður greitt upp eftirstöðvar svokallaðs Avens skuldabréfs að fjárhæð 192 milljónir evra auk vaxta. Upphaflegt nafnverð bréfsins var 402 milljónir evra og var það afborgunarbréf, gefið út árið 2010 með lokagjalddaga 2025.

Lánið var tilkomið vegna kaupa ríkissjóðs á eignavörðum skuldabréfum Avens B.V. sem var félag í eigu gamla Landsbankans. Bankinn hafði sumarið 2008 fengið fyrirgreiðslu hjá Evrópska Seðlabankanum í Lúxemborg (ECB) gegn veði í skuldabréfum Avens B.V. Eignir Avens B.V. voru fyrst og fremst íslensk skuldabréf og varð félagið stærsti einstaki eigandi krónueigna utan Íslands. Við bankahrunið eignaðist ECB í Lúxemborg kröfu á Avens og undirliggjandi krónueignir. Í kjölfar samkomulags Seðlabanka Íslands og ríkissjóðs annars vegar og þrotabús Landsbankans og ECB í Lúxemborg hins vegar, um kaup á eignum Avens var gert samkomulag við 26 íslenska lífeyrissjóði um kaup þeirra á stórum hluta af krónueignum Avens gegn greiðslu í evrum. Um var að ræða skuldabréf útgefin af ríkissjóði og Íbúðalánasjóði.

Eftirstöðvar Avens skuldabréfsins 28,3 ma.kr. voru greiddir af gjaldeyrisinnstæðum ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands en þær hafa vaxið nokkuð á árinu m.a. vegna uppgreiðslu Arion banka á víkjandi lánum ríkissjóðs, samtals að fjárhæð um 20 ma.kr.

Nánari upplýsingar veitir Esther Finnbogadóttir í síma 545-9200.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum