Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skilvirkari umgjörð jarða- og eignamála  

Hagkvæm og skilvirk umsýsla eigna ríkisins er meginhlutverk Ríkiseigna sem taka til starfa 1. mars en þá sameinast jarðaumsýsla fjármála- og efnahagsráðuneytis og fasteignaumsýsla Fasteigna ríkissjóðs.

Sameiningin er einn hluti af margháttuðum verkefnum fjármála- og efnahagsráðuneytisins til að stuðla að hagkvæmari ríkisrekstri. Unnið hefur verið að sameiningunni með  hliðsjón  af þeirri góðu raun sem gefist hefur af því að fela Fasteignum ríkissjóðs daglega umsýslu  og viðhald hefðbundinna húseigna ríkisins. Með samsvarandi breytingu á umsýslu jarðeigna ríkisins verða stigin frekari skref í framfaraátt  í þessum efnum.

Með sameiningunni  færast dagleg verkefni sem tengjast jarð- og fasteignum ríkssjóðs á einn stað. Fyrirséð er að hagræðing felist í því að stofnuninni gefst færi á að bæta árangur á sviði skráningar og umsýslu húseigna, jarðeigna og auðlinda á ríkisjörðum. Ríkiseignir munu sinna útleigu, viðhaldi og rekstri fasteigna í eigu ríkissjóðs, umsýslu og skráningu fasteigna og jarðrænna auðlinda ríkisins, ásamt daglegri umsýslu jarðeigna í eigu ríkissjóðs, sjá um ábúðarmál og hafa umsjón með leigusamningum, innheimtu jarðarafgjalda og leigugreiðslna, auk þess að sinna samskiptum við leigutaka, ábúendur, sveitarfélög og aðra opinbera aðila.

Eignarráð í málaflokknum  verða áfram á hendi fjármála- og efnahagsráðuneytis. Í því felst að ráðuneytið tekur hér eftir sem áður allar stærri ákvarðanir og fer með almenna stefnumörkun í málaflokknum sem miðar fyrst og fremst að því að draga úr eignarhaldi ríkisins á húseignum og jörðum.  

Ríkiseignir verða með aðsetur í Borgartúni 7 í Reykjavík. Sextán störf verða í sameinaðri stofnun. Þar af færast fimm störf úr fjármála- og efnahagsráðuneyti og ellefu störf frá Fasteignum ríkissjóðs.  Framkvæmdastjóri verður Snævar Guðmundsson sem verið hefur framkvæmdastjóri Fasteigna ríkissjóðs.  

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum