Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Embætti forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins laust til umsóknar 

Laust er til umsóknar embætti forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins. Hlutverk Framkvæmdasýslu ríkisins er að vera leiðandi á sviði opinberra framkvæmda með það að markmiði að bæta verklag og auka skilvirkni, hagkvæmni og gæði við framkvæmdir ríkisins.

Framkvæmdasýslan veitir ráðuneytum og ríkisstofnunum ráðgjöf um byggingatæknileg málefni og undirbúning framkvæmda á vegum ríkisins. Hún fer með yfirstjórn verklegra framkvæmda, sbr. lög nr. 84/2001, um skipan opinberra framkvæmda og reglugerðar nr. 715/2001, um skipulag opinberra framkvæmda.

Starfssvið forstjóra:

  • Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi stofnunarinnar
  • Áætlanagerð
  • Stjórnun mannauðs
  • Stefnumótunarvinna
  • Samskipti við stjórnvöld og hagsmunaaðila
  • Erlend samskipti

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf á meistarastigi eða samsvarandi sem nýtist í starfi er skilyrði
  • Stjórnunar- og rekstrarreynsla
  • Fagleg þekking og reynsla af verklegum framkvæmdum
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
  • Reynsla af stefnumótunarvinnu og breytingastjórnun er æskileg
  • Leiðtogahæfileikar og geta til að hvetja aðra til árangurs
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og uppbyggilegt viðmót
  • Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur og kraftur til að hrinda verkum í framkvæmd
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Vald á einu Norðurlandamáli er kostur

Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Skipað er í embættið til fimm ára í senn. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar nk.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent, www.capacent.is.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Jóna Björk Sigurjónsdóttir ([email protected]) og Auður Bjarnadóttir ([email protected])hjá Capacent ráðningum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um skipan í embættið.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum