Tölulegar upplýsingar um launagreiðslur til lækna
Leitað hefur verið eftir því við fjármála- og efnahagsráðuneytið að það birti tölulegar upplýsingar um laun lækna sem starfa hjá ríkinu. Af því tilefni hefur ráðuneytið annars vegar tekið saman gögn um meðallaun þeirra lækna sem þiggja laun frá ríkinu og hins vegar upplýsingar um meðaltal heildarlauna lækna sem starfa á Landsspítala Íslands, sundurliðaðar eftir stöðuheitum.
Tekið skal fram að hér eru meðtalin öll laun lækna; dagvinnulaun, yfirvinnulaun, vaktaálag, stjórnunarálag, helgunarálag, menntunarálag o.fl.
I.
Meðallaun lækna á launaskrá hjá ríkinu á árinu 2013 voru kr. 1.126.292.- á mánuði. Skurðlæknar eru hér ekki meðtaldir. Heildarfjöldi ársverka sem að baki þessu meðaltali liggur er 569.
II.
Heildarlaunagreiðslur til lækna sem starfa á Landsspítala Íslands, sundurliðaðar eftir starfsheitum, voru að meðaltali sem hér segir á árinu 2013 (reiknað á ársverk):
Starfsheiti |
Fjöldi ársverka
|
Meðaltal heildarlauna
|
---|---|---|
Læknafélag Íslands | ||
Kandídat | 33 | 671.716 |
Almennur | 109 | 858.119 |
Sérfræðingur | 207 | 1.133.310 |
Yfirlæknir | 66 | 1.342.183 |
Skurðlæknafélag Íslands | ||
Sérfræðingur |
43 | 1.296.389 |
Yfirlæknir | 25 | 1.673.486 |
III.
Heildarlaunagreiðslur til lækna sem starfa við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sundurliðaðar eftir starfsheitum, voru að meðaltali sem hér segir á árinu 2013 (reiknað á ársverk):Starfsheiti |
Fjöldi ársverka
|
Meðaltal heildarlauna
|
---|---|---|
Læknafélag Íslands | ||
Almennur læknir | 41 | 608.433 |
Sérfræðingur | 73 | 1.013.696 |
Yfirlæknir | 20 | 1.183.820 |