Hoppa yfir valmynd
31. október 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Rafrænir reikningar frá 1. janúar 2015

Frá og með 1. janúar 2015 skulu allir reikningar til ríkisstofnana vegna kaupa ríkisins á vöru og þjónustu vera með rafrænum hætti.  Ákvörðunin um að taka upp rafræna reikninga frá og með 2015 var kynnt í febrúar sl. Hún er í samræmi við gildandi samninga við birgja um fyrirkomulag reikninga. 

Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Ríkiskaup hafa einnig gefið út yfirlýsingu um viðskiptakjör ríkisins sem skulu gilda við kaup ríkisstofnana á vöru og þjónustu, í tilvikum þar sem engir samningar eða samkomulag gilda um viðskiptin. Þar er meðal annars kveðið á um rafræna reikninga. 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum