Fjárlagafrumvarpið sett fram myndrænt
Fyrirtækið Datamarket hefur, líkt og síðustu ár, sett fjárlagafrumvarpið fram með myndrænum hætti. Á vef þess er að skoða útgjöld ríkisins eftir ráðuneytum fyrir fjárlagafrumvarp ársins 2015.
Einnig er mögulegt að bera saman frumvarpið 2015 við fjárlög áranna 2011-2014. Sjá má tvenns konar framsetningu Datamarket á fjárlagafrumvarpinu fyrir 2015.