Heimsókn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum undir forystu Peter Dohlman lauk í dag tveggja vikna heimsókn sinni til Íslands. Heimsókn sendinefndarinnar tengist eftirfylgni við efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins (e. Post-Program Monitoring) sem lauk í ágúst 2011.
Sendinefndin átti fundi með stjórnvöldum, þingmönnum, fulltrúum háskóla, einkageirans og aðilum vinnumarkaðarins. Skýrsla um úttektina verður gefin út í kjölfar umræðu í framkvæmdastjórn sjóðsins.
Álit sendinefndarinnar, þar sem greint er frá helstu niðurstöðum af viðræðum síðustu tveggja vikna, hefur verið birt á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og má finna hér að neðan.
- Álit sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (álitið er á ensku)