Hoppa yfir valmynd
7. apríl 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkissjóður tilbúinn að leggja tugi milljóna í Geysissvæðið án skuldbindinga

Vegna ummæla talsmanns landeigenda hluta Geysissvæðisins, um að í tillögu ríkissjóðs um greiðslu kostnaðar til verndar svæðinu í ár og á næsta ári fyrir tugi milljóna króna, hafi falist afsal einhverra réttinda tekur ríkissjóður fram að sú fullyrðing er ekki rétt. Í tillögu ríkissjóðs er engin krafa gerð um afsal réttinda.

Í samningsdrögunum er sérstaklega áréttað að samkomulagið hafi engin áhrif á réttarstöðu aðila og að ríkissjóður eigi engar kröfur á sameigendur vegna framkvæmdanna eftir gildistíma samkomulagsins.

Þá vill ríkissjóður að fram komi að þessi athugasemd er sú fyrsta sem ríkissjóður fær við samkomulagsdrögin enda hafa sameigendur ríkisins að hluta svæðisins ekki svarað tilboðinu á nokkurn hátt fram til þessa.
 
Telji sameigendur samningsdrögin fela í sér afsal réttinda er fjármála- og efnahagsráðuneytið tilbúið að fara yfir þau mál með þeim. Þetta áréttar fjármála- og efnahagsráðuneytið vegna ummæla talsmanns landeigenda í fréttum Ríkisútvarpsins í dag.

Ríkissjóður bauð í febrúar sl. sameigendum að svæðinu umhverfis Geysi að ráðast í framkvæmdir á svæðinu á þessu ári fyrir tugi milljóna króna. Eins að ríkissjóður bæri allan kostnað vegna reksturs og gæslu á svæðinu. Jafnframt var óskað eftir því að þeir legðu fram upplýsingar um þann kostnað sem þeir hefðu haft af rekstri svæðisins. Sameigendum voru í lok febrúar send samningsdrög þar sem þetta kom fram.

Þetta var boðið gegn því að sameigendur féllu frá fyrirhugaðri gjaldtöku og reynt yrði í kjölfarið að ná samkomulagi um framtíðarskipan mála á svæðinu.

Vegna umræðu um Geysissvæðið að undanförnu er enn fremur áréttað að ríkið er einkaeigandi þess hluta lands innan girðingar á svæðinu sem hefur mest aðdráttarafl. Innan þess eru helstu hverir svæðisins, þ.e. Geysir, Strokkur og Blesi. Landið umhverfis þessa séreign ríkisins er hins vegar í sameign ríkis og félags landeigenda. Ríkissjóður á fyrir utan séreignina u.þ.b 25% í sameignarlandinu með félaginu.

Kort af Geysissvæðinu sem sýnir skiptingu eignar ríkissjóðs og annarra landeigenda


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum