Hoppa yfir valmynd
6. mars 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Guðfinna S. Bjarnadóttir tekur við stjórnarformennsku í Hörpu

Guðfinna S. Bjarnadóttir
Guðfinna S. Bjarnadóttir

Guðfinna S. Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri, mun taka við formennsku í stjórn Hörpu á hluthafafundi sem haldinn verður fimmtudaginn 13. mars. Hún tekur við af Helgu Jónsdóttur sem baðst lausnar vegna starfa erlendis.

„Ég hlakka mikið til að taka við stjórnarformennskunni í Hörpu enda er verkefnið verðugt. Harpa er vel heppnuð, hún hefur þegar hlotið ýmsar viðurkenningar, m.a. evrópsk verðlaun fyrir arkitektúr á sl. ári, í vikunni var hún valin meðal fallegustu tónlistarhúsa heims, hljómburður í Eldborg telst meðal þess sem best þekkist og síðast en ekki síst auðgar Harpa mannlíf og menningu. Húsið er töfrandi tónlistar- og ráðstefnuhús sem hefur sitt eigið aðdráttarafl, þar komu t.d. ríflega 35 þúsund manns um helgina og nutu margvíslegra viðburða,“ segir Guðfinna.

Hún var fyrsti rektor Háskólans í Reykjavík og alþingismaður frá 2007-2009. Guðfinna er meðeigandi og stjórnandi í LC Ráðgjöf og sem ráðgjafi hefur hún þjónað fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum víða um heim.

Guðfinna er með doktorsgráðu í atferlisfræði með áherslu á stjórnun auk BA- og MA-gráðu í sálfræði. Guðfinna hefur sinnt margvíslegum trúnaðarstörfum og setið í stjórnum fjölda fyrirtækja og verkefna hér heima og erlendis.

Frekari upplýsingar veitir Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, s. 663 0035, netfang [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum