Hoppa yfir valmynd
23. desember 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tekjuviðmiðunarmörk í fyrsta þrepi hækka um 20%, persónuafsláttur hækkar um 4,2%, og tryggingargjald lækkar um 0,1%

Samkvæmt gildandi lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal í upphafi árs hækka persónuafslátt hvers einstaklings í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði.

Á grundvelli þess verður persónuafsláttur 605.977 kr. fyrir árið í heild og 50.498 krónur að meðaltali á mánuði. Persónuafsláttur einstaklinga hækkar því um 24.157 kr. milli áranna 2013 og 2014, eða liðlega 2 þúsund kr. á mánuði og nemur hækkunin 4,2%.

Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða samkvæmt því 141.025 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð samanborið við 135.330 kr. á mánuði 2013. Hækkunin milli ára nemur 4,2%.

Í tekjuskattslögunum er einnig kveðið á um að fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, þ.e. mörkin milli skattþrepa, skulu taka breytingum í upphafi hvers árs í réttu hlutfalli við hækkun launavísitölu á undangengnu tólf mánaða tímabili. Launavísitala nóvembermánaðar liggur nú fyrir og er hækkun hennar á tólf mánaða tímabili 6,1%. Í tengslum við kjarasamninga hefur verið ákveðið að hækka mánaðarleg tekjuviðmiðunarmörk í fyrsta þrepi sérstaklega í 290.000 kr. á mánuði, eða 20% milli ára.

Mánaðarleg tekjumiðunarmörk þrepa verða samkvæmt því 290.000 kr. í fyrsta þrepi, 494.619 kr. í öðru þrepi og 784.619 kr. í þriðja þrepi fyrir tekjur ársins 2014.

Þá mun skatthlutfall tekjuskatts í fyrsta þrepi lækka úr 22,9% í 22,86%, eða um 0,04 prósentustig, frá og með 1. janúar 2014, en samhliða því hækkar hámarksútsvar úr 14,48% í 14,52% á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga vegna málefna fatlaðra.

Tekjuskattur er lagður á í þremur þrepum eins og áður. Þrepin skiptast þannig að af fyrstu 3.480.000 kr. árstekjum einstaklings (290.000 kr. á mánuði) er reiknaður 22,86% skattur. Af næstu 5.935.428 kr. (494.619 kr. á mánuði) er reiknaður 25,3% skattur og síðan í þriðja þrepi 31,8% skattur af árstekjum umfram 9.415.428 kr. (784.619 kr. á mánuði).

Við þessi hlutföll bætist útsvar sem er mishátt eftir sveitarfélögum. Meðalútsvar á árinu 2014 verður samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðun sveitarfélaga 14,44% í stað 14,42% á árinu 2013. 

Staðgreiðsluhlutfall ársins 2014 verður þríþætt eftir fjárhæð tekna, þ.e. 37,30% á tekjur í fyrsta þrepi sem er lækkun um 0,02 prósentustig frá fyrra ári, 39,74% á tekjur í öðru þrepi sem er lækkun um 0,48 prósentustig  og 46,24% á tekjur í þriðja þrepi sem er hækkun um 0,02 prósentustig.

Tryggingagjald er sérstakt gjald sem launagreiðendum ber að greiða af heildarlaunum launamanna sinna á tekjuári og eftir atvikum af eigin reiknuðu endurgjaldi. Tryggingagjald  er innheimt í staðgreiðslu og skiptist í almennt tryggingagjald og atvinnutryggingagjald.

Tryggingagjald telst til svokallaðra launatengdra gjalda, en það eru þau gjöld sem launagreiðendur, þ.m.t. sjálfstætt starfandi menn, greiða vegna launakostnaðar við atvinnurekstur. Önnur launatengd gjöld í staðgreiðslu eru markaðsgjald og gjald í Ábyrgðarsjóð launa, en þau eru innheimt í staðgreiðslu samhliða innheimtu tryggingagjalds.

Á staðgreiðsluárinu 2014 er tryggingagjaldshlutfallið að meðtöldu markaðsgjaldi og gjaldi í Ábyrgðasjóð launa 7,59% og lækkar því um 0,1 prósentustig milli ára. Skipting þess er sem hér segir:

 Almennt tryggingagjald                                             6,04%
 Atvinnutryggingagjald                                               1,45%
 Gjald í Ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota             0,05%
 Markaðsgjald                                                             0,05%
 Samtals til staðgreiðslu                                             7,59%

Sérstök trygging (0,65%) bætist við vegna launa sjómanna á fiskiskipum.
Tryggingagjaldi skal skila mánaðarlega til innheimtumanna ríkissjóðs.

Nánari upplýsingar veitir Elva Björk Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, [email protected].

Reykjavík, 23. desember 2013.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum