Fréttir stjórnenda
Þessi fréttaflokkur geymir fréttabréf fyrir stjórnendur ríkisstofnana sem starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins gefur út.
Fréttabréfið er ætlað forstöðumönnum ríkisstofnana, öðrum stjórnendum og starfsmönnum sem vinna við rekstrar- og starfsmannamál. Í fréttabréfinu er að finna fróðleik og upplýsingar um málefni sem snerta rekstur, stjórnun og starfsmannamál. Þá er í hverju fréttabréfi pistill frá Félagi forstöðumanna. Fréttabréfið er gefið út fjórum sinnum á ári. Útgáfa þess hófst sumarið 1999 og er það eingöngu birt á vef ráðuneytisins.
Sendu okkur beiðni um áskrift að fréttabréfi stjórnenda.
