Fjárframlög til Ríkisútvarpsins ohf.

25.1.2010

Fréttatilkynning nr. 2/2010

Helstu atriđi:

  • Framlag ríkissjóđs til RÚV áriđ 2009 var 575 m.kr. umfram innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi.
  • Fjárlög 2010 gera ráđ fyrir ađ framlag ríkissjóđs til RÚV verđi 418 m.kr. umfram innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi.

Ađ gefnu tilefni vilja fjármálaráđuneytiđ og mennta- og menningarmálaráđuneytiđ koma eftirfarandi stađreyndum á framfćri.

Međ lögum nr. 6/2007, um Ríkisútvarpiđ ohf. (RÚV), var kveđiđ á um upptöku sérstaks útvarpsgjalds frá 1. janúar 2009 sem koma skyldi í stađ afnotagjalda. Skv. lögunum var gjaldiđ markađ, ţ.e. allar innheimtar tekjur af ţví áttu ađ renna til reksturs RÚV.

Viđ efnahagshruniđ í október 2008 skapađist mikil óvissa um tekjustofna ríkissjóđs, ţ.á m. útvarpsgjaldiđ. Til ţess ađ bregđast viđ ţeirri óvissu lagđi ţáverandi ríkisstjórn fram frumvarp um breytingu á lögum nr. 6/2007. Međ ţví var m.a. lagt til ađ gjaldiđ yrđi hćkkađ um 18% auk ţess sem bein mörkun ţess til reksturs RÚV var afnumin. Ţessar breytingar voru samţykktar á Alţingi í desember 2008.

Í fjárlögum ársins 2009 var gert ráđ fyrir ađ framlag til RÚV úr ríkissjóđi yrđi 2.945 m.kr. Voriđ 2009 ákvađ núverandi ríkisstjórn ađ leggja ţađ til ađ framlag til RÚV yrđi aukiđ um 630 m.kr. í fjáraukalögum (21% aukning frá fjárlögum). Heildarframlag ríkissjóđs til RÚV áriđ 2009 nam ţví 3.575 m.kr.

Í fjárlögum 2009 var gert ráđ fyrir ađ innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi yrđu 3.575 m.kr. en viđ endanlega gerđ fjáraukalaga kom í ljós ađ einungis 3.000 m.kr. myndu skila sér. Framlag ríkissjóđs til RÚV var ţví 575 m.kr. umfram áćtlađar innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi áriđ 2009.

Viđ gerđ fjárlaga ársins 2010 var sett markmiđ um 10% ađhald í rekstri RÚV eins og margra annarra rekstrarstofnana. Framlag ríkissjóđs til RÚV mun ţví lćkka úr 3.575 m.kr. í 3.218 m.kr. á ţessu ári sem er ţó hćrra en ţađ var áriđ 2008. Í fjárlögum 2010 er áćtlađ ađ innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi verđi 2.800 m.kr. og verđi ţví 418 m.kr. lćgra en framlag ríkissjóđs til RÚV verđur skv. fjárlögum.

Viđ gerđ áćtlunar um tekjur af útvarpsgjaldi fyrir fjárlög ársins 2010 var tekiđ miđ af útkomu ársins 2009 sem sýndi ađ tekjustofninn hafđi veriđ ofmetinn í fjárlögum ársins 2009.

Fjármálaráđuneytinu, 25. janúar 2010



 





Stođflokkar