Samkomulag um Icesave-skuldbindingar í höfn
Fréttatilkynning nr. 33/2009
Mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi.
Ríkisstjórnin samþykkti í gær að samninganefnd um Icesave myndi undirrita samning til lausnar Icesave deilunni við Hollendinga og Breta. Samkomulagið er mikilvægur áfangi í endurreisn íslensks efnahags. Breska fjármálaráðuneytið hefur þegar boðað að kyrrsetningu eigna Landsbankans í Bretlandi verði aflétt og mun það gerast strax 15. júní næstkomandi.
Lán Hollendinga og Breta til Tryggingasjóðs innstæðueigenda er til 15 ára en fyrstu 7 árin þarf hvorki að greiða afborganir né vexti. Sem skilyrði fyrir lántökunni fær tryggingarsjóðurinn framselda kröfu breskra og hollenskra sparifjáreigenda í þrotabú Landsbankans. Á afborgunarlausa tímabilinu og síðar verður hægt að nýta það sem kemur úr þrotabúinu til að greiða skuldina niður án kostnaðar. Árið 2016 verður ábyrgð ríkissjóðs á eftirstöðvum skuldarinnar virk.
Í samkomulaginu er kveðið á um 5,55% fasta ársvexti, þ.e. 1,25% álagi ofan á lágmarksviðmiðunarvexti OECD sem eru 4,30%. Jafnframt er gert ráð fyrir að ef enn betri lánskjör bjóðast á lánstímanum verði hægt að greiða lánið upp. Samkomulagið er í öllum atriðum umtalsvert hagstæðara en útlit var fyrir síðastliðið haust.
Við fall gamla Landsbanka Íslands urðu inneignir 340 þúsund sparifjáreigendur óaðgengilegir í útbúum bankans í Bretlandi og Hollandi. Heildarupphæð þessara innistæðna nam jafnvirði rúmlega 1.200 milljörðum króna. Tryggingasjóður innstæðueigenda ábyrgist 20.887 evrur á hvern reikning eða um 660 milljarða króna miðað við núverandi gengi.
Í forsendum samkomulagsins er lagt til grundvallar varfærið mat á eignum Landsbankans og við það miðað að á næstu sjö árum muni 75% af andvirði Icesave innstæðutrygginganna greiðast af þeim. Á þeim tíma munu engar greiðslur leggjast á ríkissjóð né íslenska skattgreiðendur. Eftirstöðvarnar í því tilviki, um 170 milljarðar auk vaxta, gætu þá fallið á ríkissjóð næstu átta árin þar á eftir. Breska endurskoðunarstofnunin CIPFA gerir hins vegar ráð fyrir því að eignir Landsbankans geti staðið undir allt að 95 % af andvirði Icesave innistæðutrygginganna. Í því tilviki myndu um 33 milljarðar auk vaxta falla á ríkissjóð.
Samkomulagið er mikilvæg forsenda í framgangi efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar og þess að hægt verði að ganga frá samningum við þær vinaþjóðir sem boðið hafa lánafyrirgreiðslu til að efla gjaldeyrisforða Íslands. Með samkomulaginu er komið til móts við að eyða óvissu um framvindu íslenskra efnahagsmála á næstu árum.
Í framhaldinu verður málið kynnt almenningi og frumvarp lagt fram á Alþingi um ríkisábyrgð vegna þessa samkomulags.
Fjármálaráðuneytinu, 6. júní 2009
