Breyting í bankaráði Kaupþings

25.2.2009

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 10/2009

Gunnar Örn Kristjánsson viðskiptafræðingur sem nýlega var skipaður í bankaráð Kaupþings, hefur óskað eftir því við fjármálaráðherra að láta af störfum.

Skipan Gunnars bar brátt að og við nánari skoðun taldi hann starfið viðameira og fela í sér meiri bindingu en hann hefur aðstöðu til að inna af hendi.

Fjármálaráðherra hefur í dag fallist á beiðni Gunnars Arnar og mun nýr fulltrúi verða skipaður í ráðið í hans stað hið fyrsta.

Reykjavík 25. febrúar 2009

Send article




Flýtival




Tungumál


Þetta vefsvæði byggir á Eplica