Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fréttabréf stjórnenda ríkisstofnana, 3. tölublað 14. árgangs, er komið út á vef ráðuneytisins.
Lesa meiraOddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, efnahags - og viðskiptaráðherra, birtu sameiginlega blaðagrein í Fréttablaðinu í dag. Grein þeirra fjallar um útgreiðslu 2,6 mia. kr í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur nú 1.maí sem er hrein viðbót við hefðbundnar vaxtabætur sem ríkissjóður greiðir. Þau benda á að með hækkun vaxtabóta um á þriðja milljarð króna á fyrrihluta árs 2009 sem hefur haldist síðan, hafi ríkið varið um 18 milljörðum króna í vaxtabætur og í sérstaka vaxtaniðurgreiðslu á hverju ári árin 2011 og 2012. Það sé nálægt þriðjungur af öllum vaxtakostnaði heimilanna. Greinina má lesa hér í heild sinni.
Nú um mánaðarmótin greiddi ríkissjóður 2,648 milljarða króna í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur til húseigenda vegna skulda íbúðarhúsnæðis þeirra.
Lesa meiraRíkissjóður Íslands gekk í gærkvöldi frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð 1 milljarði Bandaríkjadala, sem jafngildir um 124 milljörðum króna. Skuldabréfin bera fasta vexti og eru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 6,0%. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 4 milljörðum Bandaríkjadala. "Heilmikil tímamót fyrir Ísland" segir fjármálaráðherra.
Lesa meiraNý rannsókn á starfskilyrðum forstöðumanna ríkisstofnana hefur verið birt. Könnunin er á sviði stjórnunar og starfsmannamála ríkisstofnana, sem er hluti af rannsóknum sem gerðar hafa verið á síðustu árum á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Að könnuninni stóðu fjármálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag forstöðumanna ríkisstofnana. Í rannsókninni kemur m.a. fram að stærstur hluti forstöðumanna ríkisstofnana (90%) er almennt ánægðir í starfi en vinnuálag hafi vaxið mjög frá árinu 2007.
Oddný G. Harðardóttir, birti nýlega grein í Fréttablaðinu. Í greininni fjallar fjármálaráðherra um hugmyndir um gjald á auðlindarentu, svarar gagnrýnisröddum þar um og segir m.a. frá vinnu við stofnun auðlindareiknings í eigu ríkissjóðs. Greinina má lesa í heild sinni hér.