Landiđ eitt skattumdćmi

12.1.2010

Ţann 1. janúar sl. tóku gildi ný lög um breytingar á skipulagi stofnana skattkerfisins (lög nr. 136/2009, um breyting á lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og fleiri lögum), sem fólu í sér sameiningu embćttis ríkisskattstjóra og níu sjálfstćđra skattstofa undir stjórn ríkisskattstjóra. Markmiđiđ međ ţessum breytingum er einkum tvíţćtt: Annars vegar ađ ná fjárhagslegu ađhaldi í rekstri stofnana skattkerfisins og hins vegar ađ efla faglega starfsemi skattkerfisins. Međ ţví ađ sameina embćttin eru stađbundin valdmörk afnumin og landiđ gert ađ eina skattumdćmi. Ţannig gefst ákveđiđ svigrúm til ţess ađ dreifa álagi milli starfsstöđva í kringum landiđ og auka sérhćfingu innan kerfisins.

Yfirstjórn embćttisins verđur í Reykjavík, en áfram verđa reknar starfsstöđvar á Akranesi, Ísafirđi, Siglufirđi, Akureyri, Egilsstöđum, Hellu, Vestmannaeyjum og í Hafnarfirđi. Ţá verđur Skattstofan í Reykjavík rekin áfram fyrst um sinn.

Gert er ráđ fyrir ađ fjárhagslegur sparnađur af ţessum ađgerđum nemi um 140 m.kr. á ţessu ári. Áćtlanir gera ráđ fyrir fćkkun starfsfólks án ţess ađ ţađ komi til uppsagnar af hálfu embćttis ríkisskattstjóra. Ekki verđur ráđiđ í allar stöđur sem losna (svo sem vegna aldurs, eđa ađ frumkvćđi starfsmanna), einhverjir starfsmenn sem ráđnir hafa veriđ tímabundiđ fá ekki áframhaldandi ráđningu og ekki er gert ráđ fyrir áframhaldandi verkefnum fyrir ţá sem sinnt hafa ţeim í tímavinnu.



 





Stođflokkar