Fréttatilkynning nr. 5/1998. Viðurkenning til ríkisstofnana 1998: Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi er til fyrirmyndar.

10.2.1998

Í september síðastliðnum skipaði fjármálaráðherra nefnd til að veita viðurkenningu ríkisstofnun sem skarar fram úr og er til fyrirmyndar í starfi sínu. Er þetta í annað sinn sem slík viðurkenning er veitt en í apríl 1996 hlaut hana Kvennaskólinn í Reykjavík.

Í nefndinni voru Páll Kr. Pálsson framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, formaður, Arney Einarsdóttir framkvæmdastjóri Gæðastjórnunarfélags Íslands, Erna Gísladóttir framkvæmdastjóri Bifreiða og landbúnaðarvéla hf., Kristinn Briem blaðamaður við viðskiptablað Morgunblaðsins og Svafa Grönfeldt, lektor við viðskiptadeild Háskóla Íslands og forstöðumaður starfsmannaráðgjafar GALLUP. Með nefndinni störfuðu Haukur Ingibergsson forstöðumaður Hagsýslu ríkisins og Gísli Þór Magnússon stjórnsýslufræðingur.

Nefndin bauð öllum ríkisstofnunum að koma til greina við þetta val og sendi þeim spurningalista sem byggðist að hluta til á Innskyggni Gæðastjórnunarfélags Íslands sem notaður er til sjálfsmats í fyrirtækjum og sem matsviðmiðun við veitingu Íslensku gæðaverðlaunanna. Valið var úr hópi þeirra 32 ríkisstofnana sem svöruðu spurningalistanum og óskuðu eftir að koma til greina. Eftir að hafa farið yfir svör stofnana og upplýsingar sem aflað var með símaviðtölum ákvað nefndin að taka 5 stofnanir til nánari skoðunar m.a. með heimsókn. Þær eru: Fjölbrautaskóli Vesturlands, Iðntæknistofnun Íslands, Ríkisspítalar, Skattrannsóknarstjóri ríkisins og Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi.

Viðurkenning til ríkisstofnunar sem er til fyrirmyndar í starfi sínu á rætur að rekja til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í ríkisrekstrinum á síðustu árum. Markvisst hefur verið unnið að því að færa vald og ábyrgð til stjórnenda ríkisstofnana og gera starfsaðstæður þeirra líkari og er í fyrirtækjum. Samhliða þessu hafa kröfur um árangur stofnana aukist sem m.a. kemur fram í samningum sem ráðuneyti eru í auknum mæli að gera við stofnanir sínar. Þar er áhersla lögð á að stofnanir setji sér skýr markmið um árangur og geri síðan grein fyrir því hvernig tekst að ná settu marki.

Í dag afhenti fjármálaráðherra Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi viðurkenningu fyrir að skara fram úr og vera til fyrirmyndar í starfi sínu.

Í niðurstöðu nefndarinnar segir m.a. að stofnunin byggi starfsemi sína á þeirri grunnhugmynd að til þess að veita megi fólki með fötlun og aðstandendum þeirra góða þjónustu þurfi starfsmenn að vera í stakk búnir til þess að gefa af sjálfum sér. Þetta sé grundvöllur þeirrar áherslu sem lögð er á starfsmannastjórnun hjá stofnuninni. Hver starfsmaður ber skilgreinda ábyrgð á þjónustu við þjónustuþega sem byggir á metnum þörfum þeirra.

Í niðurstöðu nefndarinnar kemur einnig fram að í stjórnun stofnunarinnar sé mikil áhersla lögð á altæka gæðastjórnun, rýni og úrbætur og að liðsvinna sé byggð inn í hið opna skipulag og þann metnaðarfulla menningarbrag sem tekist hafi að skapa. Markmiðasetning og eftirfylgni verkefna sé til mikillar fyrirmyndar og stofnunin nýti í senn aðferðir og hugmyndafræði úr einkarekstri og bestu fræðilegar aðferðir, kenningar og viðmið.

Svæðisskrifstofan sinnir þjónustu við fatlaða í Reykjaneskjördæmi. Aðalskrifstofa stofnunarinnar er í Kópavogi en heimili og þjónustustofnanir dreifast um allt kjördæmið. Stofnunin veltir tæpum 400 m.kr. á ári og starfsmenn hennar eru um 150.

Framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjanesi er Þór Þórarinsson.

Fjármálaráðuneytinu 10. febrúar 1998.


Send article

Þetta vefsvæði byggir á Eplica