Fréttatilkynning nr. 9/2000. Ríkisstofnun til fyrirmyndar.

29.5.2000

Í dag afhenti Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, Landgræðslu ríkisins viðurkenningu sem ríkisstofnun til fyrirmyndar árið 2000. Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd stofnunarinnar.

Þetta er í þriðja sinn sem slík viðurkenning er veitt og hlaut Kvennaskólinn í Reykjavík hana árið 1996 og Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Reykjanesi árið 1998.

Í janúar s.l. skipaði fjármálaráðherra nefnd til að velja þá ríkisstofnun sem skarar fram úr og er til fyrirmyndar í starfi sínu. Í nefndinni voru Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hf., formaður, Haraldur Á. Hjaltason, framkvæmdastjóri hjá VSÓ Deloitte & Touch Ráðgjöf og formaður Gæðastjórnunarfélags Íslands og Svafa Grönfeldt, lektor við viðskiptadeild Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri þróunarsviðs Gallup ehf.. Leifur Eysteinsson, viðskiptafræðingur hjá fjármálaráðuneytinu starfaði með nefndinni.

Öllum ríkisstofnunum voru sendir spurningalistar þar sem m.a. var spurt um markmiðasetningu, fjármálastjórn, frammistöðu stofnunarinnar gagnvart notendum, skilvirkni, framtíðarþróun og sýn stofnunarinnar. Valið var úr hópi 16 ríkisstofnana sem svöruðu og óskuðu eftir að koma til greina. Eftir að hafa farið yfir svör stofnana voru 6 stofnanir valdar til nánari skoðunar. Þær eru: Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, Fiskistofa, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Flugmálastjórn, Landgræðsla ríkisins og Skipulagsstofnun. Af þessum stofnunum valdi nefndin þrjár sem hún telur skara fram úr og lenti Landgræðslan í fyrsta sæti, en hinar tvær eru Fjölbrautaskóli Suðurlands og Áfengis- og tóbaksverslunin.

Markvisst hefur verið unnið að því í ríkisrekstri á undanförnum árum að færa vald og ábyrgð til stjórnenda ríkisstofnana og gera starfsaðstæður þeirra líkari og er í fyrirtækum. Samhliða þessu hafa kröfur um árangur stofnana aukist sem m.a. kemur fram í samningum sem ráðuneyti eru í auknum mæli að gera við stofnanir sínar. Þar er áhersla lögð á að stofnanir setji sér skýr markmið um árangur og geri síðan grein fyrir því hvernig tekst að ná settu marki. Viðurkenning til ríkisstofnunar sem er til fyrirmyndar í starfi sínu á rætur að rekja til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í ríkisrekstrinum á síðustu árum.

Í niðurstöðu nefndarinnar segir m.a.: Landgræðsla ríkisins hefur um langt árabil verið þekkt fyrir að vera framsækin og myndarlega rekin stofnun með jákvæða ímynd sem hefur hjálpað henni að ná fram markmiðum sínum. Stofnunin hefur í bæði skiptin sem verðlaunin hafa verið veitt áður verið í hópi þeirra sem helst komu til greina við val á fyrirmyndarstofnun. Að mati nefndarinnar er Landgræðslan með mjög skýr meginmarkmið og forgangsröðun verkefna. Henni hefur tekist að nýta tækifæri sem hafa gefist og aflað sér víðtæks stuðnings almennings og hagsmunaaðila. Hún hefur fylgt fjárlögum og notað rekstraráætlanir sem virkt stjórntæki. Stofnunin hefur á síðustu árum lagt aukna áherslu á rannsóknir, fræðslu og leiðbeiningar en dregið úr eigin framkvæmdum og fært þau verkefni til verktaka, bænda og sveitarfélaga. Jafnframt því sem verkefnin breytast eru störf og innra skipulag endurskoðað, auk þess sem markvisst er unnið að upplýsingagjöf og fræðslu starfsmanna.

 

Fjármálaráðuneytinu 25 . maí 2000

Send article

Þetta vefsvæði byggir á Eplica