Nr. 8/2004. ÁTVR valin ríkisstofnun til fyrirmyndar 2004.

10.5.2004

Í dag afhenti Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) viðurkenningu sem ríkistofnun til fyrirmyndar 2004. Höskuldur Jónsson, forstjóri, veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd stofnunarinnar. Verðlaunagripinn, Vegvísinn, hannaði og smíðaði Jón Snorri Sigurðsson gullsmiður. Einnig afhenti ráðherra Fiskistofu viðurkenningarskjal fyrir góðan árangur og Heilbrigðisstofnunin á Akranesi hlaut hvatningarviðurkenningu.

Fjármálaráðherra skipaði nefnd í janúar til að velja þá ríkisstofnun sem skarar fram úr og er til fyrirmyndar í starfi sínu. Í nefndinni voru Hörður Sigurgestsson, rekstrarhagfræðingur, formaður, Ásta Bjarnadóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík og Ragnheiður Halldórsdóttir, formaður Stjórnvísi. Arnar Þór Másson, stjórnmálafræðingur, og Leifur Eysteinsson, viðskiptafræðingur, hjá fjármálaráðuneytinu störfuðu með nefndinni.

Óskað var eftir tilnefningum frá ráðuneytum auk þess sem ríkisstofnanir gátu sjálfar óskað eftir að verða tilnefndar. Nefndin fékk greinargerðir frá 15 stofnunum að þessu sinni, þær voru metnar út frá því hversu skýr stefnumótun, framtíðarsýn og markmiðssetning stofnunarinnar er, hversu vel henni er fylgt eftir og hversu vel starfsmenn eru meðvitaðir um markmiðssetninguna. Einnig lagði nefndin áherslu á að stefnan beindist út á við og að stofnunin veiti notendum góða þjónustu. Jafnframt var lögð áhersla á að stjórnendur skilji umhverfið sem stofnunin starfar í, átti sig á lykilþáttum í rekstri og sjái tækifæri til þess að bæta og efla þjónustu en einnig að hagræða í rekstri. Enn fremur var lagt mat á fjármálastjórn, skýra og skjalfesta verkferla, starfsmannamál, upplýsingatækni og trúverðugleika. Nefndin lagði ríka áherslu á það að ríkisstofnun til fyrirmyndar sé árangursrík, skilvirk og hafi metnað til að bæta sig.

Markvisst hefur verið unnið að því í ríkisrekstri á undanförnum árum að færa völd og ábyrgð í rekstrar- og starfsmannamálum til stjórnenda ríkisstofnana og gerðar eru auknar kröfur um árangur af þeirri starfsemi sem þar fer fram. Val á ríkisstofnun til fyrirmyndar á rætur að rekja til þessarar stefnu.

Í niðurstöðu nefndarinnar segir m.a. um vinningshafann:

"ÁTVR er þjónustufyrirtæki sem farið hefur í gegnum miklar breytingar á undanförum árum og gerbreytt ímynd sinni með markvissum aðgerðum. Sá árangur sem hefur náðst er afrakstur framsækinnar stefnumörkunar þar sem athyglin beinist að því að koma til móts við væntingar og þarfir viðskiptavina og annarra hagsmunaðila. Unnið er samkvæmt markvissum áætlunum þar sem fram koma markmið og mælikvarðar, beitt er nýjustu tækni og lögð áhersla á hæfni og þekkingu starfsfólks. Markmiðum og mælikvörðum er fylgt eftir innan ársins og sífellt leitað leiða til þess að bæta þjónustuna og gera starfsemina skilvirkari. Vel er staðið að fjármálastjórnun og með hagræðingaraðgerðum hefur tekist að innleiða breytingar án þess að auka við kostnað sem hlutfall af veltu."

Þetta er í fimmta sinn sem ríkisstofnun til fyrirmyndar er valin en Orkustofnun varð fyrir valinu árið 2002, Landgræðsla ríkisins árið 2000, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi árið 1998 og Kvennaskólinn í Reykjavík árið 1996.

Fjármálaráðuneytinu, 10. maí 2004



Send article

Þetta vefsvæði byggir á Eplica