Námskeið

Fjármálaráðuneytið hefur í samstarfi við Endurmenntun skipulagt námskeið fyrir starfsmenn ríkisins haustið 2009 og vorið 2010. Námskeiðin eru sniðin að sérþörfum ríkisins og ríkisstarfsmanna.

Námskeiðin eru haldin í húsnæði Endurmenntunar. Valin námskeið verða kennd í fjarkennslu frá símenntunarstöðvum landsins ef næg þátttaka fæst og veitir Endurmenntun upplýsingar um þau.

Skráning fer fram á vefsíðu Endurmenntunar, www.endurmenntun.is eða í síma 525 4444.

Haust 2009

Gerð lagafrumvarpa og reglugerða

Farið verður yfir gerð lagafrumvarpa, reglugerða og annarra stjórnvaldsfyrirmæla þ.m.t. reglur og leiðbeiningar forsætisráðuneytisins um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa. Fjallað verður sérstaklega um hvernig skuli útbúa slíkan texta, hvað hann eigi að innihalda og helstu aðferðir kynntar.

  • Ætlað starfsfólki sem annast gerð lagafrumvarpa, reglugerða og annarra stjórnvaldsfyrirmæla.
  • Hvenær: Fim. 24. sept. kl. 12:15-17:15
  • Kennarar: Páll Þórhallsson, deildarstjóri í forsætisráðuneytinu og Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra.
  • Verð: 12.800 kr.
  • Þátttaka í fjarfundi möguleg

Fjármál ríkisstofnana

Gerð verður grein fyrir umfangi og afmörkun ríkisrekstrarins, fjárlögum og fjárlagagerð, reglugerð um framkvæmd fjárlaga og fjárhagslegri ábyrgð forstöðumanna. Einnig verður farið yfir ýmis verkefni fjármáladeilda stofnana, svo sem verklag og áherslur við áætlanagerð og reikningsskil, kostnaðareftirlit og tengsl fjármálastjórnar við stefnumótun og ýmis umbótaverkefni.

  • Ætlað forstöðumönnum, fjármálastjórum og starfsfólki fjármáladeilda.
  • Hvenær: Fim. 1. okt. kl. 13:00-16:00 og fös. 2. okt. kl. 8:30-12:30
  • Kennari: Jón Magnússon, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
  • Verð: 17.400 kr.
  • Þátttaka í fjarfundi möguleg

Sameining stofnana / verkefna

Farið verður yfir atriði í breytingastjórnun sem þarf að huga að þegar unnið er að sameiningu stofnana og öðrum umfangsmiklum skipulagsbreytingum. Rit Leifs Eysteinssonar: „Sameining ríkisstofnana og tengdar breytingar“ (PDF 896 KB) sem fjármálaráðuneytið gaf út í desember 2008 verður lagt til grundvallar á námskeiðinu.

  • Ætlað þeim sem taka virkan þátt í sameiningu stofnana eða öðrum meiriháttar skipulagsbreytingum.
  • Hvenær: Fim. 29. okt. kl. 13:15-16:00 og fös. 30. okt. kl. 8:30-12:30
  • Kennari: Leifur Eysteinsson, sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu.
  • Verð: 17.400 kr.

Vor 2010

Upplýsinga- og skjalastjórn

Farið verður yfir lög og reglur sem gilda um mál innan ráðuneyta og stofnana og aðferðir við vistun gagna. Einnig verður farið í skjalastjórnun sem aðferð við að auðvelda stjórnun ráðuneyta og stofnana og auka skilvirkni og bæta upplýsingastreymi. Auk þess verður fjallað um hlutverk Þjóðskjalasafns Íslands.

  • Ætlað starfsfólki stofnana sem sér um myndun, útsendingar og utanumhald bréfa og skjala.
  • Hvenær: Fim. 21. jan. kl. 13:15-16:00 og fös. 22. jan. kl. 8:30-12:30
  • Kennarar: Kristín Ólafsdóttir, M.Sc., bókasafns- og upplýsingafræðingur og skjala- og upplýsingastjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og Ásgerður Kjartansdóttir, MLib, bókasafns- og upplýsingafræðingur og deildarstjóri skjala- og bókasafns menntamálaráðuneytisins.
  • Verð: 17.400 kr. Þátttaka í fjarfundi möguleg

Stjórnsýslu- og upplýsingalög

Farið verður yfir helstu ákvæði stjórnsýslu- og upplýsingalaga. Tekin verða fyrir raunhæf dæmi sem upp kunna að koma og álitaefni. Fjallað verður um hlutverk embættis umboðsmanns Alþingis og tengsl þess við starfsfólk stjórnsýslunnar.

  • Ætlað ólöglærðu starfsfólki ráðuneyta og stofnana sem starfa við almenna stjórnsýslu.
  • Hvenær: Fim. 15. apríl kl. 13:00-16:30 og fös. 16. apríl kl. 8:30-12. Kennari: Kjartan Bjarni Björgvinsson, aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn.
  • Verð: 17.400 kr.
  • Þátttaka í fjarfundi möguleg



Flýtival




Tungumál


Þetta vefsvæði byggir á Eplica