Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar - júlí 2005. Greinagerð 1. september 2005

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júlí 2005 (PDF 76K)

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu sjö mánuði ársins liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er breyting á handbæru fé frá rekstri jákvæð um 4,6 milljarða króna á tímabilinu, sem er 25,6 milljörðum króna betri útkoma heldur en áætlað var. Einnig er útkoman 20,6 milljörðum betri en á sama tíma í fyrra. Milli ára hækka tekjurnar um 34,7 milljarða, á meðan að gjöldin hækka um 15,1 milljarð. Hreinn lánsfjárjöfnuður er jákvæður um 15,8 milljarða króna miðað við 14,2 milljarða neikvæða stöðu í fyrra.

Heildartekjur ríkissjóðs námu 185,1 milljörðum króna og hækkuðu um tæpa 34,7 milljarða frá sama tíma í fyrra, eða um 23%. Þar af námu skatttekjur ríkissjóðs um 166,5 milljörðum króna sem er hækkun upp á 18,7% frá sama tíma í fyrra, nokkru meira en gert var ráð fyrir í áætlunum. Til samanburðar má nefna að almennt verðlag hækkaði um 3,8% á sama tímabili þannig að skatttekjur hækkuðu að raungildi um 14,4%.

Skattar á tekjur og hagnað námu ríflega 52,3 milljörðum króna á tímabilinu sem er 15,2% meiri innheimta miðað við sama tíma í fyrra. Þar af jókst innheimta tekjuskatta einstaklinga um 11,5% en tekjuskattur lögaðila drógst saman um 5,6%. Umtalsverð aukning varð hins vegar á tekjum af fjármagnstekjuskatti, eða um 54% sem jafngildir um 48,3% raunhækkun milli ára. Innheimta tryggingagjalda nam rúmlega 18,1 milljörðum króna sem er 11,9% aukning að raungildi frá fyrra ári en til samanburðar má nefna að launavísitala Hagstofunnar hækkaði á sama tímabili um 6,6%. Innheimta eignarskatta jókst töluvert á milli ára, eða um 44% að raungildi en sú aukning endurspeglar að mestu aukna innheimtu stimpilgjalda enda hefur velta á fasteignamarkaði verið umtalsverð á árinu. Aðrar rekstrartekjur námu 18,1 milljörðum króna og jukust um 8,1 milljarða milli ára sem skýrist einkum af arðgreiðslum frá Landssímanum og sektargreiðslum olíufélaganna.

Veltuskattar ríkissjóðs jukust einnig töluvert frá sama tíma fyrir ári, eða um 19,1% sem er 14,7% aukning að raungildi. Þróun almennra veltuskatta gefur nokkuð góða mynd af þróun eftirspurnar í hagkerfinu og þá sérstaklega þróun virðisaukaskattsins en hann hefur aukist um 22,5% frá fyrra ári sem gefur vísbendingu um að lítið lát virðist vera á almennri eftirspurn. Jafnframt skiluðu vörugjöld af ökutækjum mun meiri tekjum inn en í fyrra, eða um 76,5% en á fyrstu sjö mánuðum ársins hefur innflutningur bifreiða aukist um 61,5% frá fyrra ári.

Greidd gjöld námu 181 milljarði króna og hækka um 15,1 milljarð frá fyrra ári, en þar af skýrast 5,7 milljarðar af hækkun vaxtagreiðslna þar sem stór flokkur spariskírteina kom til innlausnar í apríl. Að vöxtum frátöldum hækka gjöldin um 6,1% milli ára. Útgjöld til félagsmála, þ.e. vegna almannatrygginga, fræðslu- og heilbrigðismála, vega langþyngst í útgjöldum ríkissjóðs, eða 116,6 milljarðar sem er 64%. Þar kemur fram 8,4 milljarða króna hækkun, eða 7,8%. Innan málaflokksins munar mest um hækkun til heilbrigðismála, 4,8 milljarða og 3,1 milljarða vegna fræðslumála. Hins vegar eru greiðslur til almannatrygginga því sem næst óbreyttar frá því í fyrra. Greiðslur annarra málaflokka, en félagsmála og vaxta, standa einnig því sem næst í stað milli ára, t.d lækka greiðslur til atvinnumála um 1,1% en hækkun almennra mála nemur 1,8%.

Lánahreyfingar. Afborganir lána námu 33,3 milljörðum sem skiptast þannig að 19,3 milljarðar eru vegna afborgana erlendra langtímalána og 13,9 milljarðar vegna spariskírteina. Lántökur námu samtals 13,3 milljörðum króna, 9 milljarðar innanlands í formi ríkisvíxla og ríkisbréfa og 4,3 milljarðar í erlendum skammtímalánum. Þá voru 2,3 milljarðar greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar sjóðsins. Handbært fé ríkissjóðs lækkaði um 6,5 milljarða frá áramótum fram til júlíloka.

Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar - júlí 2005

(Í milljónum króna)

2001

2002

2003

2004

2005

Innheimtar tekjur.............................................

122.986

131.399

147.465

150.429

185.085

Greidd gjöld....................................................

128.231

141.957

150.807

165.139

180.985

Tekjujöfnuður.................................................

-5.244

-10.558

-3.342

-15.428

4.100

Söluhagn. af hlutabr. og eignahl. ....................

3

-3.175

-12.059

-

-

Breyting rekstrartengdra eigna og skulda........

-2.985

-2.236

-577

-577

496

Handbært fé frá rekstri..................................

-8.226

-15.969

-15.978

-16.005

4.596

 

Fjármunahreyfingar.......................................

614

8.449

17.783

1.840

11.206

 

 

 

 

 

 

Hreinn lánsfjárjöfnuður.................................

-7.612

-7.520

1.805

-14.165

15.802

 

 

 

 

 

 

Afborganir lána..............................................

-22.045

-19.877

-18.021

-29.142

-33.343

   Innanlands....................................................

-7.292

-9.737

-5.612

-4.139

-14.000

   Erlendis.........................................................

-14.753

-10.140

-12.409

-25.004

-19.342

 

 

 

 

 

 

Greiðslur til LSR og LH.................................

-8.750

-5.250

-4.375

-4.375

-2.250

 

 

 

 

 

 

Lánsfjárjöfnuður. brúttó................................

-38.408

-32.647

-20.591

-47.683

-19.790

 

 

 

 

 

 

Lántökur.........................................................

31.859

30.324

24.245

39.386

13.305

   Innanlands....................................................

11.037

12.370

22.868

16.127

8.956

   Erlendis........................................................

20.822

17.954

1.377

23.259

4.349

 

 

 

 

 

 

Greiðsluafkoma ríkissjóðs............................

-6.547

-2.323

3.654

-8.296

-6.486

 

 

 

 

 

 

 

Tekjur ríkissjóðs janúar-júlí

(Í milljónum króna)

 

 

 

 

 

Breyting frá fyrra ári, %

 

2003

2004

2005

 

2002

2003

2004

2005

Skatttekjur í heild...............................

124.411

140.238

166.484

 

4,0

5,2

12,7

18,7

   Skattar á tekjur og hagnað.............

40.677

45.416

52.335

 

5,4

0,8

11,7

15,2

     Tekjuskattur einstaklinga...............

32.363

33.271

37.082

 

14,2

4,3

2,8

11,5

     Tekjuskattur lögaðila.....................

2.525

5.783

5.459

 

-41,0

-30

129,0

-5,6

     Skattur á fjármagnstekjur o.fl..........

5.789

6.361

9.768

 

14,2

1,2

9,9

53,6

  Tryggingagjöld................................

14.165

15.646

18.181

 

8,6

8,3

10,5

16,2

  Eignarskattar...................................

4.645

5.501

8.240

 

-2,2

-15,8

18,4

49,8

  Skattar á vöru og þjónustu.............

64.569

73.399

87.397

 

3,1

10,9

13,7

19,1

     Virðisaukaskattur..........................

41.908

47.764

58.491

 

5,7

8,9

14,0

22,5

 Aðrir óbeinir skattar.........................

22.661

25.635

28.906

 

-1,2

10,9

13,1

12,8

       Þar af:

 

 

 

 

 

 

 

 

       Vörugjöld af ökutækjum..............

2.600

3.519

6.211

 

-13,8

54,2

35,3

76,5

       Vörugjöld af bensíni.....................

4.191

4.744

4.985

 

-3,9

-0,2

13,2

5,1

       Þungaskattur.............................

2.760

3.242

2.740

 

-5,8

1,2

17,5

-15,5

       Áfengisgjald og tóbaksgjald........

5.660

5.805

6.174

 

-0,3

19,6

2,6

6,4

       Annað............................................

7.450

8.325

8.796

 

1,5

5,1

11,7

5,7

Aðrir skattar...................................

355

277

331

 

50,8

-2,7

-22,0

19,5

Aðrar tekjur......................................

23.054

10.190

18.601

 

41,7

74,8

-55,8

82,5

Tekjur alls........................................

147.465

150.428

185.085

 

6,8

12,2

2,0

23,0



 

Gjöld ríkissjóðs janúar-júlí

 

(Í milljónum króna)

 

Breyting frá fyrra ári. %

 

2003

2004

2005

 

2002

2003

2004

2005

Almenn mál

15.981

16.916

17.222

 

12,9

1,9

5,9

1,8

Almenn opinber mál

8.916

9.371

9.270

 

17,5

-2,3

5,1

-1,1

Löggæsla og öryggismál

7.065

7.545

7.951

 

7,1

7,8

6,8

5,4

Félagsmál

93.545

108.172

116.598

 

12,7

11,4

15,6

7,8

Þar af: Fræðslu- og menningarmál

20.696

23.180

26.196

 

11,2

7,2

12,0

13,0

Heilbrigðismál

39.568

41.782

46.602

 

15,1

11,4

5,6

11,5

 Almannatryggingamál

27.828

37.062

36.801

 

9,6

15,5

33,2

-0,7

Atvinnumál

22.570

23.681

23.414

 

5,9

5,6

4,9

-1,1

Þar af: Landbúnaðarmál

6.419

6.942

6.802

 

5,6

-6,3

8,1

-2,0

Samgöngumál

10.536

10.696

10.485

 

7,6

14,1

1,5

-2,0

Vaxtagreiðslur

11.278

9.757

15.419

 

7,8

-22,3

-13,5

58,0

Aðrar greiðslur

7.433

7.331

8.333

 

4,0

15,9

-1,4

13,7

Greiðslur alls

150.807

165.856

180.985

 

10,7

6,2

10,0

9,1



 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica