Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tæpir átta milljarðar greiddir í tekjufallsstyrki

Um 1.400 rekstraraðilar hafa fengið um 7,8 milljarða króna greidda í tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Tekjufallsstyrkir nýtast rekstraraðilum sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli í heimsfaraldrinum og er markmiðið að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum með því að styðja þau fyrirtæki og einyrkja þar sem tekjufall er meira en 40%.

Alls hafa tugir milljarða verið greiddir í fjölbreyttan stuðning í úrræðum ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins sem eru á annan tug talsins - styrkir, lán, gjaldfrestir og annað - sem á fjórða tug rekstraraðila og tugþúsundir einstaklinga hafa nýtt sér. Sem dæmi hafa verið greiddir nærri 2 milljarðar króna í lokunarstyrki, sem koma til móts við rekstraraðila sem gert hefur verið að stöðva starfsemi sína, auk þess sem um 5,6 milljarðar króna hafa verið endurgreiddir aukalega af virðisaukaskatti (VSK) vegna margs konar framkvæmda en endurgreiðslurnar nýtast einkum einstaklingum og félögum á borð við sveitarfélög, almannaheillafélög og íþróttafélög . Þá mun Skatturinn byrja að taka á móti umsóknum um viðspyrnustyrki á allra næstu dögum. Þeim styrkjum er ætlað að koma til móts við vanda rekstraraðila og gera samfélagið betur viðbúið því sem tekur við þegar heimurinn opnast að nýju.

Minni fyrirtæki í meirihluta þeirra sem nýttu úrræði

Yfirgnæfandi meirihluti fyrirtækja sem nýttu sér úrræði stjórnvalda vegna faraldursins árið 2020 voru með tíu launamenn eða færri. Þannig voru þau um 82% þeirra sem nýttu úrræðin, alls rúmlega 2.500 fyrirtæki. Markmið stuðnings við fyrirtæki er að verja störf eins og kostur er auk þess að skapa öfluga viðspyrnu þegar faraldrinum sleppir.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum