Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Viljayfirlýsing um kaup ríkisins á hlutum orkufyrirtækja í Landsneti hf.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra,  hafa fyrir hönd ríkissjóðs undirritað viljayfirlýsingu við orkufyrirtækin Landsvirkjun, RARIK ohf., Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubú Vestfjarða, sem eigendur alls hlutafjár í Landsneti hf. um að ganga til viðræðna um kaup ríkisins á hlutum félaganna í Landsneti hf.

Með viljayfirlýsingunni lýsa allir hlutaðeigandi aðilar sig reiðubúna til að ganga til formlegra viðræðna um kaup og sölu hlutafjár í Landsneti hf., með það að markmiði að ná samningi þar um á árinu 2021. Slík breyting á eignarhaldi Landsnets hf. hefur verið til skoðunar um langt skeið og er í samræmi við nýsamþykkta orkustefnu fyrir Ísland, „Sjálfbær orkuframtíð, Orkustefna til ársins 2050“, sem kynnt var 2. október 2020. Í orkustefnu kemur fram að mikilvægt sé að ljúka eigendaaðskilnaði flutningsfyrirtækisins þannig að því verði komið alfarið í beina opinbera eigu. Hlutlaust eignarhald er grundvöllur gegnsæis og jafnræðis á raforkumarkaði.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum