Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Vaktaálagsauki hjúkrunarfræðinga á Landspítala tryggður

Vaktaálagsauki sem hjúkrunarfræðingar á Landspítala hafa fengið vegna tilraunaverkefnis spítalans verður framlengdur til næstu mánaða og nauðsynlegar fjárveitingar tryggðar. Þetta kemur fram í bréfi sem fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra hafa sent forstjóra Landspítala vegna málsins. 

Árið 2017 setti Landspítalinn af stað tilraunaverkefni, svokallaðan vaktaálagsauka. Tilgangur
vaktaálagsaukans var að auka hvata hjúkrunarfræðinga til þess að sinna vinnuskyldu sinni utan dagvinnumarka. Verkefnið hófst í apríl 2017 og var upphaflega ætlað að standa í 6 mánuði. Landspítali hefur framlengt verkefnið þrisvar sinnum og átti því að ljúka um síðastliðin áramót samkvæmt ákvörðun spítalans.

Vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem nú eru uppi er mikilvægt að Landspítali framlengi
greiðslur samkvæmt verkefninu næstu mánuði eða allt að 1. október 2020 eftir nánara mati
spítalans.

 „Við ætlum að gera grundvallarbreytingar í þeim samningum sem eru í farvatninu á vaktavinnufyrirkomulaginu. Vonandi hjálpar framlenging á greiðslum fyrir álag vegna vakta til að ljúka kjaraviðræðum samninganefndar ríkisins og hjúkrunarfræðinga farsællega. Ég vil trúa því," segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.

,,Þegar horft er til þeirra alvarlegu aðstæðna sem nú eru uppi í heilbrigðiskerfinu vegna Covid-19, þar sem álag á heilbrigðisstéttir er meira en nokkru sinni, tel ég augljóst að ráðstafanir sem skerða kjör hjúkrunarfræðinga eru fráleitar," segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum