Hoppa yfir valmynd
16. maí 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2019

Horft að Keili frá Sjálandi í Garðabæ - myndHugi Ólafsson

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1. Gisting og fæði í einn sólarhring   kr. 32.500 
2. Gisting í einn sólarhring  kr. 20.600
3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag  kr. 11.900 
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 5.950

Dagpeningar þessir gilda frá og með 15. maí 2019. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2019 dags. 30. janúar 2019.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.

Reykjavík, 15. maí 2019

Ferðakostnaðarnefnd

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum