Hoppa yfir valmynd
11. mars 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Aðgengi að opinberum útboðum einfaldað með rafrænu útboðskerfi

Ríkiskaup hafa innleitt rafrænt útboðskerfi með það að markmiði að einfalda aðgengi að opinberum útboðum og draga úr umsýslukostnaði. Í nýja kerfinu eru auglýsingar og útboðsgögn öllum aðgengileg endurgjaldslaust.

Vonir standa til þess að breytingarnar leiði til þess að fleiri fyrirtæki taki þátt í opinberum útboðum og að samkeppni aukist.

Í rafrænu útboðskerfi geta bjóðendur sent tilboð sín rafrænt í stað þess að koma tilboðum til Ríkiskaupa á pappír í umslögum. Tilboðstími útboða getur styst, gagnaframsetning verður skilvirkari og úrvinnsla tilboða oftast rafræn. Þannig er öll umsýsla einfölduð.

Einfaldara umhverfi opinberra innkaupa

Undanfarið hefur verið unnið að fleiri verkefnum í því augnamiði að einfalda umhverfi opinberra innkaupa, auka skilvirkni og gagnsæi. Nú má nálgast öll útboð ríkisaðila, sveitarfélaga og fyrirtækja í opinberri eigu á einum stað.

Þá eru einnig aðgengilegar rafrænt upplýsingar um greidda reikninga ráðuneyta og stofnana úr bókhaldi ríkisins

Nánari upplýsingar um rafræna útboðskerfið 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum