Hoppa yfir valmynd
8. desember 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fitch Ratings hækkar langtímalánshæfiseinkunn ríkissjóðs í „A“ - horfur sagðar stöðugar

Matsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag að það hefði hækkað lánshæfiseinkunn ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í innlendum og erlendum gjaldmiðli í „A“ úr „A-“. Þá eru horfur fyrir einkunnina sagðar stöðugar (e. outlook stable).

Helstu drifkraftar að baki hækkuninni eru efnahagsstöðugleiki, batnandi ytri staða þjóðarbúsins og skuldalækkun hins opinbera ásamt öflugum hagvexti.

„Þetta eru ánægjulegar fréttir fyrir nýja ríkisstjórn. Hækkun lánshæfiseinkunnarinnar staðfestir trú sérfræðinga Fitch á styrk hagkerfisins og á þau markmið sem sett eru í sáttmála ríkisstjórnarinnar um að áfram verði hlúð að stöðugleika í efnahagsmálum,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, en hækkun Fitch nú er fjórða hækkunin á lánshæfi ríkissjóðs á árinu 2017.

„Hækkunin mun hafa jákvæð áhrif á vaxtakostnað ríkisins og annarra aðila sem taka lán, þar með talið banka, orkufyrirtækja og annarra innlendra fyrirtækja, sem að lokum mun skila sér í bættum hag heimila,“ segir Bjarni Benediktsson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum