Beint í leiðarkerfi vefsins.
Nú um mánaðarmótin greiddi ríkissjóður 2,648 milljarða króna í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur til húseigenda vegna skulda íbúðarhúsnæðis þeirra.
Lesa meira !Ríkissjóður Íslands gekk í gærkvöldi frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð 1 milljarði Bandaríkjadala, sem jafngildir um 124 milljörðum króna. Skuldabréfin bera fasta vexti og eru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 6,0%. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 4 milljörðum Bandaríkjadala. "Heilmikil tímamót fyrir Ísland" segir fjármálaráðherra.
Lesa meira !Ný rannsókn á starfskilyrðum forstöðumanna ríkisstofnana hefur verið birt. Könnunin er á sviði stjórnunar og starfsmannamála ríkisstofnana, sem er hluti af rannsóknum sem gerðar hafa verið á síðustu árum á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Að könnuninni stóðu fjármálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag forstöðumanna ríkisstofnana. Í rannsókninni kemur m.a. fram að stærstur hluti forstöðumanna ríkisstofnana (90%) er almennt ánægðir í starfi en vinnuálag hafi vaxið mjög frá árinu 2007.
Greiðsluuppgjör fyrir fyrstu tvo mánuði ársins liggur nú fyrir. Helstu niðurstöður eru þær að handbært fé frá rekstri var jákvætt um 2,2 ma. kr. Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 7,5 ma.kr. Tekjur ríkissjóðs reyndust 9,2 ma.kr hærri en á sama tíma í fyrra en innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 91,4 ma.kr. á fyrstu tveimur mánuðum ársins sem er ríflega 11% aukning miðað við sama tímabil á síðasta ári.
Lesa meira !Fjármálaráðherra, Oddný G. Harðardóttir, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um heimild til að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf.
Lesa meira !Fjármálaráðuneytið kynnir stefnu í lánamálum ríkissjóðs 2012-2015. Stefnan endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á tímabilinu.
Lesa meira !Í þessum mánuði endurgreiða Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands 116 ma.kr. af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum
Lesa meira !Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrir árið 2011 liggur nú fyrir.
Lesa meira !Innanríkisráðuneyti og fjármálaráðuneyti boða til vinnustofu um notkun opinberra aðila á tölvuskýjum kl. 8:30 til 12 föstudaginn 9. mars 2012 í Háskólanum í Reykjavík í sal M104 Fönix.
Lesa meira !Fjármálaráðherra flutti nýverið munnlega skýrslu á Alþingi um stöðu lífeyrissjóðanna með vísan til skýrslu um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Hér má lesa skýrslu fjármálaráðherra.
Lesa meira !Nýr og endurbættur vefur vistvænna innkaupa www.vinn.is hefur verið opnaður.
Lesa meira !Fyrsta febrúar síðastliðinn voru hinir árlegu Framadagar haldnir.
Matsfyrirtækið Fitch hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB- úr BB+.
Lesa meira !Undanfarnar vikur hafa farið fram viðræður milli fulltrúa Landssamtaka lífeyrissjóða og stjórnvalda um hlutdeild lífeyrissjóða í fjármögnun á sérstökum vaxtabótum, sem kveðið var á um í viljayfirlýsingu stjórnvalda, fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða frá 3. desember 2010.
Lesa meira !Dagur kvenfélagskonunnar er í dag, 1. febrúar. Forystukonur Kvenfélagasambandsins nýttu daginn til að færa Oddnýju G. Harðardóttur hamingjuóskir með að vera fyrsta konan til að gegna stöðu fjármálaráðherra Íslands.
Lesa meira !Að gefnu tilefni vegna umræðu um mat á þeim eignum (útlánum) sem nýju bankarnir tóku við í október 2008, einkum í tengslum við nýútkomna skýrslu Hagfræðistofnunar Háskólans, vill fjármálaráðuneytið koma á framfæri athugasemdum er varða samningagerð og mat eigna í tengslum við stofnsetningu nýju bankanna.
Lesa meira !Maliina Abelsen, landstjórnarfulltrúi sem fer með ábyrgð fjármála á Grænlandi, er stödd hér á landi í vinnuheimsókn þar sem hún kynnti sér meðal annars starfssemi orkufyrirtækja.
Lesa meira !Með vísan til reglugerðar nr. 25/2012, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 18. janúar 2012, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan.
Lesa meira !Enn vekur alþjóðleg skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs Íslands frá því í júní sl.mikla athygli..
Lesa meira !Félag forstöðumanna ríkisstofnana og fjármálaráðuneytið í samvinnu við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála boða til morgunverðarfundar 25. janúar nk. um bætta umgjörð fjárlagagerðar. Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra, mun flytja erindi ásamt fleirum.
Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, birti grein í Fréttablaðinu þann 18. janúar.
Lesa meira !Fjármálaráðuneytið hefur um nokkurt skeið stefnt að endurskoðun laga um fjárreiður ríkisins sem sett voru árið 1997.
Lesa meira !Gunnar Tryggvason verkfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármálaráðherra.
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 liggur nú fyrir.
Lesa meira !Um miðjan október 2011 barst beiðni til fjármálaráðuneytisins þar sem óskað var eftir aðgangi að hluthafasamkomulögunum í tengslum við hlutafjáreign í Landsbankanum hf., Íslandsbanka hf. og Arion banka hf., milli íslenska ríkisins annars vegar og gömlu bankanna hins vegar.
Lesa meira !Þann 17. nóvember sl. óskaði fjármálaráðuneytið eftir því við IFS Greiningu að unninn yrði greinargerð í tengslum við fyrirhugaða framkvæmd Vaðlaheiðargangna.
Lesa meira !Nýskipaður fjármálaráðherra, Oddný G. Harðardóttir, hefur tekið til starfa. Oddný er fyrst kvenna til að gegna stöðu fjármálaráðherra Íslands.
Lesa meira !Á árinu 2011 voru kveðnir upp sautján dómar sem varða starfsmannamál hjá ríkinu og stofnunum þess, fimm hæstaréttardómar, sex héraðsdómar og sex félagsdómar.