Almennar fréttir

Ríkissjóður greiðir 2,6 mia. kr í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur til húseigenda - 5.5.2012 Almennar fréttir

Nú um mánaðarmótin greiddi ríkissjóður 2,648 milljarða króna í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur til húseigenda vegna skulda íbúðarhúsnæðis þeirra.

Lesa meira !
 

Vel heppnuð útgáfa ríkissjóðs á skuldabréfum í bandaríkjadölum á erlendum mörkuðum - 4.5.2012 Almennar fréttir

Ríkissjóður Íslands gekk í gærkvöldi frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð 1 milljarði Bandaríkjadala, sem jafngildir um 124 milljörðum króna.  Skuldabréfin bera fasta vexti og eru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 6,0%. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 4 milljörðum Bandaríkjadala. "Heilmikil tímamót fyrir Ísland" segir fjármálaráðherra.

Lesa meira !
 

Ný rannsókn á starfskilyrðum forstöðumanna ríkisstofnana - 27.4.2012 Almennar fréttir

Ný rannsókn á starfskilyrðum forstöðumanna ríkisstofnana hefur verið birt. Könnunin er á sviði stjórnunar og starfsmannamála ríkisstofnana, sem er hluti af rannsóknum sem gerðar hafa verið á síðustu árum á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Að könnuninni stóðu fjármálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag forstöðumanna ríkisstofnana. Í rannsókninni kemur m.a. fram að stærstur hluti forstöðumanna ríkisstofnana (90%) er almennt ánægðir í starfi en vinnuálag hafi vaxið mjög frá árinu 2007.

Lesa meira !
 

Greiðsluuppgjör janúar-febrúar 2012 liggur nú fyrir - 13.4.2012 Greiðsluafkoma ríkissjóðs

Greiðsluuppgjör fyrir fyrstu tvo mánuði ársins liggur nú fyrir. Helstu niðurstöður eru þær að handbært fé frá rekstri var jákvætt um 2,2 ma. kr. Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 7,5 ma.kr. Tekjur ríkissjóðs reyndust 9,2 ma.kr hærri en á sama tíma í fyrra en innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 91,4 ma.kr. á fyrstu tveimur mánuðum ársins sem er ríflega 11% aukning miðað við sama tímabil á síðasta ári.

Lesa meira !
 

Frumvarp um lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. - 2.4.2012 Almennar fréttir

Fjármálaráðherra, Oddný G. Harðardóttir, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um heimild til að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf.

Lesa meira !
 

Stefna í lánamálum ríkissjóðs fyrir árin 2012 – 2015 - 30.3.2012 Almennar fréttir

Fjármálaráðuneytið kynnir stefnu í lánamálum ríkissjóðs 2012-2015. Stefnan endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á tímabilinu.

Lesa meira !
 

Endurgreiðsla á lánum frá AGS og Norðurlöndum - 15.3.2012 Almennar fréttir

Í þessum mánuði endurgreiða Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands  116 ma.kr. af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum

Lesa meira !
 

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir árið 2011 - 7.3.2012 Almennar fréttir

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrir árið 2011 liggur nú fyrir.

Lesa meira !
 

Vinnustofa um notkun opinberra aðila á tölvuskýjum - 6.3.2012 Almennar fréttir

Innanríkisráðuneyti og fjármálaráðuneyti boða til vinnustofu um notkun opinberra aðila á tölvuskýjum kl. 8:30 til 12 föstudaginn 9. mars 2012 í Háskólanum í Reykjavík í sal M104 Fönix.

Lesa meira !
 

Munnleg skýrsla ráðherra um stöðu lífeyrissjóðanna - 28.2.2012 Ræður og greinar

Fjármálaráðherra flutti nýverið munnlega skýrslu á Alþingi um stöðu lífeyrissjóðanna með vísan til skýrslu um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Hér má lesa skýrslu fjármálaráðherra.

Lesa meira !
 

Nýr vefur um vistvæn innkaup í loftið - 24.2.2012 Almennar fréttir

Nýr og endurbættur vefur vistvænna innkaupa  www.vinn.is hefur verið opnaður.

Lesa meira !
 

Þátttaka ríkisstofnana í Framadögum 2012 - 23.2.2012 Almennar fréttir

Fyrsta febrúar síðastliðinn voru hinir árlegu Framadagar haldnir.

Lesa meira !
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica