Beint í leiðarkerfi vefsins.
Nú um mánaðarmótin greiddi ríkissjóður 2,648 milljarða króna í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur til húseigenda vegna skulda íbúðarhúsnæðis þeirra.
Lesa meira !Ríkissjóður Íslands gekk í gærkvöldi frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð 1 milljarði Bandaríkjadala, sem jafngildir um 124 milljörðum króna. Skuldabréfin bera fasta vexti og eru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 6,0%. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 4 milljörðum Bandaríkjadala. "Heilmikil tímamót fyrir Ísland" segir fjármálaráðherra.
Lesa meira !Ný rannsókn á starfskilyrðum forstöðumanna ríkisstofnana hefur verið birt. Könnunin er á sviði stjórnunar og starfsmannamála ríkisstofnana, sem er hluti af rannsóknum sem gerðar hafa verið á síðustu árum á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Að könnuninni stóðu fjármálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag forstöðumanna ríkisstofnana. Í rannsókninni kemur m.a. fram að stærstur hluti forstöðumanna ríkisstofnana (90%) er almennt ánægðir í starfi en vinnuálag hafi vaxið mjög frá árinu 2007.
Greiðsluuppgjör fyrir fyrstu tvo mánuði ársins liggur nú fyrir. Helstu niðurstöður eru þær að handbært fé frá rekstri var jákvætt um 2,2 ma. kr. Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 7,5 ma.kr. Tekjur ríkissjóðs reyndust 9,2 ma.kr hærri en á sama tíma í fyrra en innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 91,4 ma.kr. á fyrstu tveimur mánuðum ársins sem er ríflega 11% aukning miðað við sama tímabil á síðasta ári.
Lesa meira !Fjármálaráðherra, Oddný G. Harðardóttir, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um heimild til að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf.
Lesa meira !Fjármálaráðuneytið kynnir stefnu í lánamálum ríkissjóðs 2012-2015. Stefnan endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á tímabilinu.
Lesa meira !Í þessum mánuði endurgreiða Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands 116 ma.kr. af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum
Lesa meira !Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrir árið 2011 liggur nú fyrir.
Lesa meira !Innanríkisráðuneyti og fjármálaráðuneyti boða til vinnustofu um notkun opinberra aðila á tölvuskýjum kl. 8:30 til 12 föstudaginn 9. mars 2012 í Háskólanum í Reykjavík í sal M104 Fönix.
Lesa meira !Fjármálaráðherra flutti nýverið munnlega skýrslu á Alþingi um stöðu lífeyrissjóðanna með vísan til skýrslu um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Hér má lesa skýrslu fjármálaráðherra.
Lesa meira !Nýr og endurbættur vefur vistvænna innkaupa www.vinn.is hefur verið opnaður.
Lesa meira !Fyrsta febrúar síðastliðinn voru hinir árlegu Framadagar haldnir.