Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hvatningarátakinu „Allir vinna“ hefur verið hrundið af stað í samvinnu stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Með átakinu eru landsmenn hvattir til að leggja sitt af mörkum til sköpunar atvinnu á Íslandi. Íslensk fyrirtæki verða með vikuleg tilboð á viðeigandi vörum og þjónustu.
Fundum viðræðunefnda Íslands, Hollands og Bretlands sem haldnir voru í Haag í Hollandi í gær (2. september) og í dag (3. september) um Icesave-málefni er lokið.
Fundirnir reyndust gagnlegir en ekkert hefur verið afráðið um frekari fundahöld að svo stöddu.
Viðræðunefndir Íslands, Bretlands og Hollands munu eiga fundi í Hollandi um Icesave-málefni á morgun 2. september, og 3. september. Fundirnir voru ákveðnir í kjölfar viðræðna sem fram fóru á Íslandi á milli sendinefnda landanna í byrjun júlímánaðar síðastliðinn.
Lesa meira